Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 54

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 54
52 an markið, en svo áfjáður varð hann að lokum, að fá sem tíðast lófa- klapp og fagnaðaróp, að hann tók upp á að skjóta völunni langt út á svell — renna sér svo á eftir henni, taka hana svo upp og skjótast með hana — ekki að markinu -— nei, nei, hann nam staðar svo sem fimm metra fyrir framan markið, setti völuna rólega niður og skaut svo snarlega beint í mark og renndi sér svo um allt svellið og réð sér ekki af ánægju og monti. ÞaS kom á óvart hver svalardrykkurinn var í hléinu. 1 hléinu, að um það bil hálfnaðri dagskrá, flykktist fólk út í göng og forsali, eins og gengur, til þess að hreyfa sig og njóta hressingar. Eins og ég hef áður vikið að var yfir 30 stiga hiti þessa dagana í1 Moskvu. Og þótt loftræsting væri góð í leikhúsinu var þar all heitt, og var því engin furða, þótt leikhúsgestir almennt fengju sér ís eða svaladrykk í hléinu. Auðvitað vakti það enga furðu okkar frétta- manna, þótt mikið væri þambað af ávaxtasafa — hann er þambaður drjúgum þar sem kaldara er sem kunnugt er — en hitt kom okkur óvænt hve aðsóknin var mikil, þar sem sölukonur höfðu ekki við að opna kampavínsflöskur, — en þama gátu menn sem sé keypt sér glas af kampavini — og fór nú einn okkar og sótti glös handa okkur. Þetta kampavín hragðaðist vel sem að líkum lætur, sem önnur létt vín frá Kákasíu og víðar frá þar syðra. — Athygli okkar vakti, að fólkið, vel klætt og stillilegt í framkomu, kastaði ekki svo mikið sem bréf- snepli frá sér og ræddum við það okkar í milli, að meginskýringin á hve götumar væm hreinlegar í Moskvu, væri sú, að fólkið virti þær reglur, sem settar voru í þessum efnum. Á ferju á Moskvufljóti. Moskvu-fljót bugðast gegnrnn borgina og er mikil runferðaræð. Þar eru ferjur í stöðugmn fólksflutningum og koma við á ýmsum stöðum heggja vegna fljótsins — og er þannig með rekstri þeirra gegnt sama hlutverki og almenningsvagna á og undir götum borgarinnar. Á fljótinu getur og að líta dráttarbáta annað veifið, með einn eða fleiri vörupramma í eftirdragi. Annað kvöldið, sem við vorum í Moskvu fómm við fréttamennimir í fimm stundarfjórðunga ferjuferð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.