Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 44

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 44
42 austfirzkri stúlku hafði hann kynnst og trúlofast, þótt ekki ætti fyrir þeim að liggja að verða hjón, — en aldrei hafði hann gleymt henni. — Jú, hann var kvæntur maður og hjónabandið farsælt, en hann hafði engu gleymt og hugsaði títt um hversu henni vegnaði í lífinu aust- firzku stúlkunni, stúlkunni hans, sem eitt sinn var, en ekki vildi fara hurt með honum, en það hafði ekki staðið á honum, sagði hann. — Þessari gömlu minningu skaut upp og ég læt hana flakka hér með. Áœtlunin raskast. Liljeqvist var alltaf að fara og koma og var eitthvað farinn að ókyrrast. Það kom brátt í ljós, hvernig á þessu stóð. Hann tjáði okkur nú, að flugvélinni, sem flytja átti norsku fréttamennina til Stokkhólms hefði seinkað vegna bilunar, sem mimdi þó ekki taka langan tíma að lagfæra. En svo fór, að ekki gat orðið af Moskvufluginu á áætlunar- tíma — ekki um annað að ræða en bíða komu norsku flugmannanna. Þess er að geta, að um þessar mrmdir voru erfiðleikar byrjaðir að koma til sögunnar vegna yfirvofandi verkfalls, og bar að sjálfsögðu að mæta slíku af skilningi og jafnaðargeði, og var það og gert, en auðvitað olli það vonbrigðum, er út séð var um að komist yrði til Moskvu fyrr en einhvern tíma kvölds eða um nóttina, en einmitt þetta kvöld var það á „prógramminu“ í Moskvu, sem flestir vildu sízt verða af, en það var sýning á „Don Quijote“ ballettinum og var ekki hægt úr að bæta, þar sem hann var ekki sýndur þau kvöld, sem við vorum í Moskvu. Nú ber annars að taka það fram, að í þessari ferð allri var allt fyrir okkur gert af höfðinglyndi og rausn, og vegna þeirr- ar áætlunarröskunar, sem til sögunnar kom, var okkur boðið til Upp- sala, og sátum við þar kvöldboð SAS í Stadshotellet. Vorrmi við í góð- um fagnaði um kvöldið og fram eftir nóttu. Loks var tilkynnt, að menn skyldu reiðubúnir til brottfarar kl. 2 um nóttina, er ekið skyldi til Arlanda-flugvallar á ný. Ballerinur, frökin „Karlson og kavallerinn hennar“. Einn sænska blaðamannanna sendi blaði sínu pistil mn áætlunar- röskunina og var dálítið háðblandinn stíll á frásögninni, en hann las fyrir mig pistilinn, en þar komst hann svo að orði: — ... það fór þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.