Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 56

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 56
54 fara, eftir að hafa setið eða staðið i nálægð manns góða stund, stilli- legt, prúðmannslegt, aðlaðandi fólk, fremur alvörugefið, og allir, bæði karlar og konur, þokkalega klæddir. —■ Ég held, að fólk það sem við sáum í Moskvu, hafi verið eins vel klætt og fólk í vestrænum borg- um, sem ég hefi komið i, — áhrifa vestrænnar tízku í kvenfatnaði mun vera farið að gæta æ meira, og í miðbænum aðallega, þar sem fólksstraumurinn er mestur, verður maður þess var, að rauðbleikt hár er í meiri í metum hjá ungu stúlkunum en hið jarprauða. Framkoman. En annars var það ekki útlit fólksins og klæðaburður, sem mesta athygli vakti, heldur framkoma fólksins. Ég drap á, að mér hefði fundizt fólkið næsta alvörugefið, en þess er að geta, að þetta alvöru- gefna fólk mun ekki lengi að kippa sér yfir á vettvang gamans og gáska á glöðum stundum. Og fólkið var frjálsmannlegt í sinni alvöru- gefni og festa í svipnum, og það komst enginn efi að um það í mín- um huga að minnsta kosti, að grunnt myndi reynast á alúðinni, ef tækifæri væru til nokkurra kynna, en alúð og vinsemd var ég þó þegar búinn að reyna að nokkru og einkar notalegt viðmót þessa fólks, sem ég gat talað við —• og eins var viðmótið, þegar rætt var við þá, sem voru álíka vel að sér í ensku og ég í rússnesku. Engir bítnikar eða bítlar Mér varð það umhugsunarefni að ég hafði hvorki komið auga á bítnika eða bítla, og skal ég ekkert um það segja hvort það er fyrir áhrif valdhafa eða vegna þess, að unga fólkið í Moskvu hefur annan smekk, að þessara vestrænu áhrifa gætir ekki, að minnsta kosti ekki við skömm kynni. Liklega varð mér þetta frekara að umhugsunarefni, vegna þess, að á kvöldgöngu í Uppsölum hafði ég rétt áður séð ung- mennahóp í miðhluta borgarinnar, sitjandi á bekkjum og brúarhand- riði, eða ranglandi að mér fannst í andrúmslofti tilgangsleysis og markleysis. Taka vil ég fram, að þessi ungmenni voru ekki með nein ærsl, piltarnir höfðu flestir greitt sitt síða hár og ekkert ungmenn- anna var óhreint. Klæði voru úr öllum regnbogans litum, skálmar á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.