Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 47

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 47
45 leiksmolum, og ekki mun ég geta stillt mig um að segja eitthvað frá áhrifum þeim, sem ég varð fyrir, og hugarslangri, í þessari milljóna- borg, sem er um svo margt ólík öðrum, sem ég hefi í komið. „Hotel National“. Eftir þriggja stundarfjórðunga akstur var staðar numið fyrir fram- an Hotel National, þar sem SAS hefir aðalbækistöð sína í borginni, en þar var okkur búin gisting. Yeður var hið fegursta, ekki ský á himni, og yfir 30 stiga hiti á Celsius — komst upp í 36 stig mest meðan við dvöldumst í borginni, en ekki var hitinn, að mér fannst til óþæginda, á leið til gistihússins, enda var þetta snemma morguns. Hotel National er í miðri borginni og handan torgsins fyrir framan það blasir við Kreml og Rauða torgið. Er ég renndi augum þangað áður en inn var farið fannst mér það enn mikilfengri sjón en mig hafði grunað, að líta sólu roðin hin gullnu hjálmþök kirknanna í Kreml. „Hotel National“ er í gamalli, en mikilli byggingu, og minnti mig í ýmsu á gömul frönsk gistihús, sem ég hefi gist í, í París og víðar. I allrúmgóðum forsal var afgreiðsla sem að líkum lætur, blaða og póstkortasala o. fl. en til vinstri allmikill salur, þar sem menn geta setið og hvílst, og þar er upplýsingaskrifstofan og alþjóðabúðin (minja- gripasala) og ekki hægt að verzla nema fyrir erlendan gjaldeyri. Slík- ar verzlanir eru víðar og að sjálfsögðu í flugstöðinni. „National“ er eitt af mörgum gistihúsum borgarinnar þar sem erlendir ferðamenn gista, hin eru Metropol, Berlin, Ukraina, Sovetskaya, Leningradskaya, Pekin, Minsk og Moskva. Kynni fengum við nokkur af tveimur þeirra, Metropol og Berlin, og vik að því síðar. Engin íveruherbergi eru á grunnhæð National, heldur á efri hæð- um, og eru þar einnig matstofur o. fl. 1 forsal niðri er ekki lyklavarzla og eftirlit eins og tíðkast í vestræmnn gistihúsum, — lyklavarzla er á hverri hæð fyrir sig og gegna konur því starfi. Hver okkar frétta- manna um sig fékk í rauninni íbúð til umráða, stórt íveruherbergi, með skrifborði og síma, hægindastólum og borðum, og úr því innan- gengt í lítið svefnherbergi með fyrirhengi, og sér baðherbergi við hlið- ina á svefnherberginu. Allt var hreint og þokkalegt. Gólf í herbergj- um og göngum teppalögð. Geta vil ég þess, að gist hefi ég í gistihúsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.