Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Qupperneq 47
45
leiksmolum, og ekki mun ég geta stillt mig um að segja eitthvað frá
áhrifum þeim, sem ég varð fyrir, og hugarslangri, í þessari milljóna-
borg, sem er um svo margt ólík öðrum, sem ég hefi í komið.
„Hotel National“.
Eftir þriggja stundarfjórðunga akstur var staðar numið fyrir fram-
an Hotel National, þar sem SAS hefir aðalbækistöð sína í borginni,
en þar var okkur búin gisting. Yeður var hið fegursta, ekki ský á
himni, og yfir 30 stiga hiti á Celsius — komst upp í 36 stig mest
meðan við dvöldumst í borginni, en ekki var hitinn, að mér fannst
til óþæginda, á leið til gistihússins, enda var þetta snemma morguns.
Hotel National er í miðri borginni og handan torgsins fyrir framan
það blasir við Kreml og Rauða torgið. Er ég renndi augum þangað
áður en inn var farið fannst mér það enn mikilfengri sjón en mig
hafði grunað, að líta sólu roðin hin gullnu hjálmþök kirknanna í
Kreml.
„Hotel National“ er í gamalli, en mikilli byggingu, og minnti mig
í ýmsu á gömul frönsk gistihús, sem ég hefi gist í, í París og víðar.
I allrúmgóðum forsal var afgreiðsla sem að líkum lætur, blaða og
póstkortasala o. fl. en til vinstri allmikill salur, þar sem menn geta
setið og hvílst, og þar er upplýsingaskrifstofan og alþjóðabúðin (minja-
gripasala) og ekki hægt að verzla nema fyrir erlendan gjaldeyri. Slík-
ar verzlanir eru víðar og að sjálfsögðu í flugstöðinni. „National“ er
eitt af mörgum gistihúsum borgarinnar þar sem erlendir ferðamenn
gista, hin eru Metropol, Berlin, Ukraina, Sovetskaya, Leningradskaya,
Pekin, Minsk og Moskva. Kynni fengum við nokkur af tveimur þeirra,
Metropol og Berlin, og vik að því síðar.
Engin íveruherbergi eru á grunnhæð National, heldur á efri hæð-
um, og eru þar einnig matstofur o. fl. 1 forsal niðri er ekki lyklavarzla
og eftirlit eins og tíðkast í vestræmnn gistihúsum, — lyklavarzla er
á hverri hæð fyrir sig og gegna konur því starfi. Hver okkar frétta-
manna um sig fékk í rauninni íbúð til umráða, stórt íveruherbergi,
með skrifborði og síma, hægindastólum og borðum, og úr því innan-
gengt í lítið svefnherbergi með fyrirhengi, og sér baðherbergi við hlið-
ina á svefnherberginu. Allt var hreint og þokkalegt. Gólf í herbergj-
um og göngum teppalögð. Geta vil ég þess, að gist hefi ég í gistihúsi