Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 15

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Blaðsíða 15
13 það kom eins og af sjálfu sér, að við fórum þegar að rabba saman eins og kunningjar, og þegar hún komst að raun um hverrar þjóðar ég var, leyndi sér ekki áhugi hennar, og hún spurði margs, og fyrst af öllu um landhelgismálið. Gerði ég því nokkur skil í stuttu máli, og sagði hún þá: „Við Manarbúar skiljum vel afstöðu ykkar. Hér eru öll beztu mið upp urin, og er þar um að kenna ágengni franskra togara og annarra erlendra fiskiskipa með sín þéttriðnu net“. Hér hafði þá gerzt hið sama og við strendur Skotlands. Það varð nú úr þessu alllöng rabbstund, og aðeins hlé á, er hún þurfti að sinna öðrum, og mætti ætla, að ég væri farinn að ókyrrast því að ekki var þessi alúðlega kona neitt farin að grennslast um gistingu fyrir mig, og sannast að segja var enginn asi á mér, og mér þótti gaman við hana að spjalla, og svo hafði ég hugboð um, að hún hefði eitthvað í pokahorninu. Héldum við enn áfram rabbi okkar, og svo sagði hún allt í einu: „Ég held, að ég hafi nú dottið niður á hvað bezt sé að ég geri varðandi gistinguna. Ég ætla að hringja til góðkunningja sem á hús í miðbænum, skammt frá baðströndinni, og tekur á móti gestum á sumrin. Hann kann að vera hættur móttöku til næsta vors, en svo gætu verið gestir hjá honum enn. Það er aldrei að vita“. Og svo hringdi hún til góðkunningjans, lofaði mitt „ágæti“ ef ég má svo að orði komast, — því að engu var líkara en hún væri að tala um gamlan kunningja, og að loknu rabbi í símann, sagði hún mér, að þetta væri í lagi, og ég gæti verið viss um, að það færi vel um mig hjá þessu kunningjafólki hennar. Og hún bætti því við, að gestgjafinn væri söngmaður góður, einsöngvari í einum helzta kirkjukórnum í Douglas, ætti ágæta konu og unga dóttur, og mundi mér geðjast vel að þessu fólki. Og um það reyndist hún sannspá. Fyrstu kynni í Douglas. Ég kvaddi nú brátt þessa nýju kunningjakonu mína, tók mér sæti i næsta flugstöðvarbíl, sem var í þann veginn að leggja af stað til bæjarins (Douglas), og er þangað kom ók ég í leigubíl til einkagisti- húss Allans Wilcocks, en svo hét gestgjafinn, — kunni betur við það, þótt ég vissi, að ekki mundi þetta löng leið, ef til vill aðeins steins-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.