Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Síða 31

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Síða 31
29 skáldsins, og þótti fara vel á því að birta það sem inngangskvæði þessa safns“. Hannes Pétursson birtir ljóðið án viðlagsins (Fram, fram o.s.frv.), og vitnar í handrit, þar sem faðir minn hafði látið þess getið, að við- lagið væri ekki eftir sig, heldur höfrmd lagsins, og hafi hann leyft að það fylgdi kvæðinu 1885, en það „heyri því ekki í raun rétti“. Vegna þess arna hefi ég fellt viðlagið niður hér að framan, enda þótt sönglag Helga Helgasonar geti ekki án þess verið“, segir Hannes Pétursson ennfremur. Um fyrrnefnt handrit var mér ekki kunnugt, þegar ég valdi kvæð- ið sem inngangskvæði, en ef svo hefði verið, hefði ég getið þess, að viðlagið væri eftir höfund lagsins, því að kvæðið hefði ég hiklaust birt fyrir því með viðlaginu, — vegna þess, að þjóðin hefir frá upphafi tileinkáS sér þennan hvatningarsöng með viðlaginu. Hún þekkir hann þannig, þykir vœnt um hann þannig, og hefir haldiS tryggð við iumn. Þarna er um samrennsli Ijóðs, viðlags og lags að rœða, serri hefin haldizt og mun trúlega haldast, og mega menn vel við una á kom- andi tímum, haldist vinsældir þess, sem líklegt er. Þetta var sameináð í upphafi og verður ekki isundur skilið, og allar götur féllst fáðir minn á fyrstu birtingu þess méð hinu nauðsynlega viðlagi, „lagsins vegna“, en sætti sig við birtingu þess áfram méð piðlaginu, iog að það væri birt með því í hverju sönglagaheftinu á fætur öðru. — Það, sem ég hefi hér sagt, ber ekki að skoða sem gagnrýni á, að Hannes Pétursson birtir kvæðið í bókinni án viðlagsins. Mörgum mun þykja forvitnilegt að sjá það og eiga á prenti þannig. 1 þessari útgáfu ljóðmælanna flokkaði ég ljóðin þannig: I. 1 þessum kafla ljóðmælanna (1958) eru þau ljóð, sem birt voru í 1. útgáfu 1881, í sömu röð (með einni undantekningu vegna mis- taka). 1 skýringunum við þennan kafla var birt í heilu lagi lýsing Þórhalls biskups Bjarnarsonar í Nýju-Kirkjublaði (1911, nokkru eftir að áttræðisafmæli skáldsins var um garð gengið) á ferð norður í land þjóðhátiðarsumarið (1874), en í þeirri ferð orti skáldið kvæðið „Há- fjöllin“ (Þú bláfjallageimur). II. I þessum kafla eru kvæði þau úr Gyldendalsútgáfunni, sem ekki voru í 1. útgáfu 1881. III. og IV. I þessum köflum eru ljóð þau, sem við bættust í 3. út- gáfu 1910, að nokkrum viðbættum. I skýringum er birtur kafli úr grein um skáldið eftir Þorstein Gíslason ritstjóra og skáld (Óðinn,

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.