Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Page 37
35
mót 30 kr. borgun fyrir örk, með þar í fólgnum prófarkalestri, og að
láta ekki standa á handriti né prófarkalestri meðan á prófarkalestri
stendur, er lokið verði á yiirstandandi ári. A8 greiddri borgun fyrir
þýðinguna er velnefndur Gu8m. Gamalíelsson réttmætur eigandi
hennar, einnig þó bókin yrði prentuð aftur, og geri ég enga kröfu til
borgunar fyrir nýtt eða ný upplög“. — Og 5 fríeintök fékk þýðand-
inn „innbundin og 3 óbundin".
Þúsund og ein nótt 1943-45 3. útg. þrjú bindi (Reykholtsútgáfan)
1943-45, I. bindi 1974 4. útg. (offsetpr.) og hin væntanleg. Verkið
kom fyrst út í Kaupmannahöfn 1857-1866 (Páll Sveinsson) og 2. útg.
1910-1914 í fimm bindum (Sigurður Jónsson).
Nal og Damajanti, fornindversk skáldsaga, 1926 (Sigurður Krist-
jánsson). 2. útg. Kom fyrst út 1895.
Dœmisögur Esóps, 1942 (þar áður 1895 og 1904).
Þöglar ástir eftir Museus, 2. útg. 1939. Isafold (1. útg. ásamt
Undinu í Kaupmannahöfn 1861).
Áður en ég hóf útgáfu bóka, annaðist ég um 2. útgáfu á Róbinson
Krúsoe eftir Defoe fyrir Ársæl Árnason. Myndir voru hinar sömu og
í 1. útgáfu 1886. Sagan hefir verið gefin út tvívegis síðan (1936 og
1961).
Eftirtalar bækur gat ég út:
Redd-Hannesarríma (1924). Eftir H.C. Andersen: Saga frá Sand-
hólabyggÖinni (1929). Alpaskyttan 1929. — 2. útg. (ísafold 1946),
Dóttir eðjukómgsins (1935). Aðrar ævintýrabækur: Sagan af Trölla-
Elínu og GlensbröSur og Sankti Pétur (1932). Sagan af Kalaf og
keisaradótturinni kínversku (1933), Fimm fögur œvintýri (1942),
Ævintýrabókin (1927 -— 2. útg. 1947 með myndum eftir Barböru
Árnason. Bókfellsútgáfan), fornindversku sögurnar Sakúntala (1926,
1. íitg. 1879 Kr. Ó.Þ.), Sawitri (1924), (1. útg. 1878 K.Ó.Þ.).
Þessar tvær sögur voru sérprentaðar úr Sunnudagsblaðinu. Sögur
frá Alhambra undir upphaflegum titli: Pílagrímur ástarinnar eða
sagan af Ahem al Kamel og Rósin í Alhambra, 1939. (Pílagrímur
ástarinnar var gefinn út í Kaupmannahöfn 1860 Páll Sveinsson), en
Rósin í Alhambra var fyrst prentuð í Nýrri Sumargjöf (Páll Sveins-
son), og báðar sögurnar komu út undir titlinum Sögur frá Alhambra,
og þar einnig Hugleiðingar um veru Serkja á Spáni, þýddar af Bene-
dikt Gröndal. (Utg. fél. Baldur 1906).
Lear konungur, eftir William Shakespeare, 1970 (offsetprentun),