Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Side 39
37
mér þær að gjöf, og þáði ég þær að sjálfsögðu þakksamlega, og mun
sjá um, að þær verði áfram varðveittar vel, eins og hingað til, en
myndirnar eru með öllu óskemmdar, en alldaufar, enda aldurinn hár.
Þorvaldur Jakobsson var hinn merkasti maður. Ævisögu hans hefir
skráð Lúðvík Kristjánsson, og er hún í IV, bindi ritsafnsins Merkir
Islendingar. Nýtt safn. Þorvaldur Jakobsson var f. 1860, d. 1954. Búi
sagði mér, að hann hefði byrjað að safna myndunum á þjóðhátíðar-
árinu (1874), og var ritað á umslagið, sem þær voru í þjöShátíðar-
myndir. Myndirnar tvær af föður mínum eru eldri, teknar í Kaup-
mannahöfn, eldri myndin frá námsárum hans þar, að þvi er ætla má,
hin eldri. Faðir minn varð stúdent 1851 (þjóðfundarsumarið) og fór
utan samsumars til náms í Kaupmannahafnarháskóla, og „má nærri
geta“, segir Haraldur Níelsson prófessor í æviminningu um hann,
„að ungur stúdent með ást á frelsi og frama hafi skipað sér í flokk
þeirra Islendinga í Khöfn, er þéttast stóðu utan um Jón Sigurðsson,
enda varð Steingrímur honum handgenginn, og sýna hréf frá J.S. til
Steingríms er nýlega (ævim. birt i Andvara 1914) hafa verið birt í