Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Side 11

Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Side 11
SVFR VEIÐIMAÐURINN ■*.* MARZ MÁLGAGN STANGAVEJÐIMANNA Á ÍSLANDI 1962 Ritstjóri: Viglundui Möller, Útgefandi: StangaveiÖifélag Reykjavikur ÆgissiOu 92, Reykjavík. Afgreiðsla BergstaÖastrœti 12B, Reykjavik. Simi 13755. PrentaÖ i Ingólfsprenti. Frá Fiskum til Vatnsbera. ARIÐ hójst að þessu sinni á mánu- degi. Samkvæmt jólaskrá Beda prests á þá að verða „blandinn vetur og hvorkyn- legur, gott vor, þurrt sumar, veðrátta vindsöm, heyskapur torsóttur, heilsa manna ýmisleg, býflugur deyja, tilburð- ir ske og sjást viða“. Veturinn, sem nú er að kveðja, hejur vissulega verið blandinn. Það hejur gengið á ýmsu um veðráttuna, tjón orð- ið mikil á lifi og eignum, einkum þeirra, sem áttu afkomu sina og örlög undir duttlungum hafsins. Margir vaskir dreng- ir, sem heilsuðu hinu nýja ári með stór- um áformum og trú á jramtíðina, gista nú þá votu gröf, sem orðið hejur hinzti hvilustaður svo margra islenzkra scefar- enda jyrr og síðar. Þau haja ojt verið stór, „hliðin sem hrönn braut i frœnda- garðinn“, eins og hjá Agli Skallagríms- syni forðum, og enn getur þjóðin gert orð hans að sinum og sagt: „Veit ég ófullt og opið standa sonar skarð er sœr mér vann“. — Hjá svo örlítilli þjóð sem oss íslendingum, er missir einnar skips- hajnar stórt skarð i „frændagarðinn“, hvað þá ef jleiri týnast. Og svo viða liggja gagnvegir vináttu og frœndsemi, að ejtir hvert sjóslys sakna jleiri eða færri í öll- um landsfjórðungum vinar eða venzla- manns. Líklegt má því telja, að sumir af lesendum þessa rits séu i hópi þeirra, sem nú eiga um sárt að binda, og flytjum vér þeim samúðarkveðjur. Beda þrestur segir að vorið eigi að verða gott, og þvi viljum vér öll trúa. Þjóðina dreymir alltaf um gott vor, og eftir svona hamfaravetur má hugsa sér Veiðimaðurinn 1

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.