Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Blaðsíða 39
Þór Guðjónsson:
Fiskeldi
ný atvinnugrein.
VIÐ liíum á tímum örrar þróunar.
Svo að segja daglega koma fram nýjung-
ar á ýmsum sviðum atvinnulífsins. Ef
við íslendingar ætlum okkur í framtíð-
inni að vera efnalega sjálfstæðir og lifa
menningarlífi í landi okkar. er okkur
nauðsynlegt að fylgjast með nýjungunum,
þegar þær koma fram, og hagnýta þær
í framleiðslu okkar. Ekki hvað sízt verð-
um við að hafa vakandi auga með þeim
nýjungum, sem leitt geta til nýbreytni
í atvinnumálum okkar og skapa aðstöðu
til þess að taka upp nýjar framleiðslu-
greinar.
Ný atvinnugrein, sem unnið er við að
koma á fót hér á landi, er laxfiskaeldi.
Geysimiklar framfarir í laxfiskaeldi er-
lendis svo og fjarhagsleg þróun síðasta
hálfan annan áratuginn hefur aukið
möguleika okkar á að gera þessa at-
vinnugrein arðvænlega. Sjálfsagt er að
notfæra sér þær sérstöku aðstæður, sem
eru liér á landi til laxaeldis. Laxveiði
í sjó er bönnuð við Island, og skapar það
möguleika fyrir þann, sem sleppir laxi af
göngustærð í á eða lætur liann ganga út
úr laxabúi, að njóta ávaxta iðju sinnar,
þar sem laxinn fullþroska muni koma
þangað, sem honum var sleppt, án þess
að óviðkomandi aðilar taki þar stóran
toll af á gönguleiðum hans í sjónum.
Slíkur „tollur“ nemur í Noregi 85%
af því, sem kemur aftur fullþroska af
seiðunum, sem sleppt er, en þar, eins og
í öðrum Evrópulöndum, fer rnestur hluti
laxveiða fram í sjó.
Við uppbyggingu á nýrri atvinnugrein
er nauðsynlegt að leysa af kostgæfni
vandamál, sem á vegi verða, því að mik-
ilsvert er, að vel takist til. Styðjast verð-
ur annars vegar við erlenda reynslu og
hins vegar verður að taka tillit til ís-
lenzkra aðstæðna. Nauðsynlegt er að ætla
sér tíma við uppbygginguna og forðast
flaustur. Um reynslu á sviði fiskeldis. sem
sækja verður til annarra landa, væri fróð-
legt að ræða ýtarlega, en hér verður ekki
rúm til þess. Að þessu sinni verður að
láta nægja að skýra frá nokkrum athygl-
isverðum atriðum fiskeldis, sem fram
hafa komið í Bandaríkjunum Síðan mun
greint frá undirbúningi, sem nú er unn-
ið að hér á landi á vegum ríkisins, undir
að koma laxfiskaeldi á traustan grund-
völl og stuðla að framförum á því sviði.
Fiskeldi og fiskrækt í
Bandar ík j unum.
Bandaríkjamenn standa mjög framar-
lega í fiskrækt og eldi laxfiska. Er engin
tilviljun, að svo er. Þeir liafa nær aldar-
reynslu í þessum greinum, hafa um 15
tegundir laxfiska og mikinn fjölda lax-
Veiðimaðurinn
29