Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Qupperneq 50
sem nefnd yrði keppnismót veiðimanna,
þar sem menn notuðu aðeins sín venju-
legu veiðarfæri til keppni, en ekki sér-
stök keppnr'stæki.
Mót sem þetta þarf nákvæman undir-
búning sérfróðustu manna í keppnis-
reglum og tilhögun allri.
Ef vel tækist til um undirbúning slíks
móts og góð þátttaka fengist, gæti það
orðið hin bezta skemmtun, jafnframt
því að færum veiðimönnum veittist við-
urkenning fyrir stílfegurð og almenna
hæfni með veiðarfæri sín. Slík mót, ef
árlega væru haldin, gætu einnig gefið
mönnum tækifæri til að prófa hæfni sína
frá ári til árs.
Einnig kæmi til greina, að hafa mótið
bæði fyrir byrjendur og þá sem lengra
eru komnir, og keppa þá í mismunandi
flokkum eftir hæfni, eins og tíðkast í
nokkrum öðrum greinum íþrótta.
Þetta er ritað sem rabb, en ekki
ákvörðun, og jafnframt leitað eftir áliti
og tillögum áhugamanna um þessi mál.
Kennslu- og kastnefndin er þessa dag-
ana að viða að sér kvikmyndum, sem eru
til fræðslu og skemmtunar um stanga-
veiðina, með það í huga, að taka á leigu
kv’kmyndahús, og hafa sýningu á nokkr-
um úrvals kvikmyndum fyrir félagsmenn
SVFR. Sýningardagur er ekki ákveðinn,
en verður auglýstur í dagblöðunum.
Loks skal á það minnt, að allir, sem
hafa hug á að taka þátt í kastmóti SVFR
og Veiðimannakastmótinu, ef af því
verður, þurfa að hafa samband við ein-
hvern úr kastnefnd félagsins með góðum
fyrirvara.
Frd ritara Kennslu- og kast-
nefndar S.V.F.R.
Lokatölur og meðal-
þyngd úr nokkrum
ám 1961.
BLADIÐ hefur fengið þessar lokatöl-
ur hjá Veiðimálastofnuninni, um veiði
og meðalþyngd í eftirtöldum ám s. 1.
sumar. Munar þar sums staðar nokkru
frá þeim veiðitölum, sem birtar voru í
57. hefti, enda voru það bráðabirgðatöl-
ur, eins og tekið var fram, og þær reyn-
ast ekki alltaf áreiðanlegar. Einkum
skakkar miklu á veiðinni í Laxá í Kjós,
eða 85 löxum, sem hún er minni en hald-
ið var í haust. Ennfremur er veiðin í
Norðurá um 20 löxum minni en talið
var. Hins vegar reynist veiðin í Elliða-
ánum 26 löxum hærri en sagt var. I öðr-
um ám má heita að engu muni.
Laxa- Meðalþ.
Nöfn ánna: fjöldi pund:
Elliðaárnar 769 4,96
Laxá í Kjós 1047 6,08
Bugða 140 5,45
Laxá í Leirársveit 708 6,25
Stóra Þverá 1540 6,70
Norðurá 983 5,37
Laxá í Dölum 743 6,20
Fáskrúð 334 5,57
Laxá í Hrútafirði 70 8,22
Miðfjarðará 1931 7,11
Víðidalsá 1227 8,11
Laxá á Ásum 1245 5,81
Laxá í Aðaldal (Laxárfél.) 880 8,18
Stóra Laxá í Hreppum
(SVFR) 30 8,56
40
Veiðimaðurinn