Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Side 34

Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Side 34
númerin á flugulínunum séu orðin al- veg út í hött. NÝ NÚMER. Það var því vonum seinna, að sam- band bandarískra veiðilínuframleiðenda ákvað fyrir tveim árum, að taka í notk- un nýtt og mun fullkomnara númera- kerfi fyrir flugulínur, og er það nú að komast í framkvæmd. í stuttu máli er það í því fólgið, að línunum er gefið númer frá 1—12, miðað við heildarþunga fremstu 30 feta línunnar, þ. e. þess þunga- hluta línunnar, sem að jafnaði skiptir öllu máli um köst við veiði með ein- hendis flugustöng. Auk þess er svo getið með bókstöfum sköpulags eða lögunar línunnar . L-level er jafngild lína, DT- dobbeltaper, er sú gamla „góða“ jafn- mjókkandi lína, til beggja enda, WF- weight forward er torpedolínan, sem hef- ur torpedo-hlutann, þ. e. megin þunga- lilutann fyrir framan topplykkju, þegar kastað er, og gefur því auðveldlega lengri köst en sú gamla „dobbeltaperaða“. ST single taper er mjókkandi til annars endans, en í þeim hópi eru nýju og vin- sælu skotlínurnar. Nýja númerakerfið veitir svo einnig með bókstöfum laus- legar upplýsingar um eðlisþunga, þ. e. sökkhraða línunnar: F-flotlína, S-sökk- lína og I-intermediate, eða mitt á milli. Það gefur því auga leið, að enda þótt þetta kerfi veiti ekki tæmandi upplýsing- ar, þá er það ósambærilega miklu full- komnara en gömlu línunúmerin, og veit- ir að jafnaði nægar upplýsingar fyrir þann, sem er að leita sér að fluguveiði- línu og „veit hvað hann vill“. Um skotlínurnar, sem mega heita nýj- ar af nálinni hér, er rétt að geta þess, að þær gefa auðveldlega mun lengri kast- lengd en hinar línugerðirnar, ef menn halda renninæloninu óflæktu, sem er auðvelt að jafnaði, sé að því hugað, og notað þjált renninælon. Skotlínan er ca. 30 feta löng, fyrir einhendis stöng, og frammjókkandi. Á hinum gilda aftur- enda línunnar er lykkja, sem renninælon- inu er hnýtt í, en það þarf að vera mjúkt og þjált. Bezt er að hafa það um 0.50, mm svert og 25—30 m langt, en svo einhverja snúna eða ofna undirlínu úr gerfiefni, sem fúnar ekki. Þannig verður hjólið næstum sléttfullt, þegar öll línan er á það komin. Um það, hvað sé bezt og hvað næst bezt o. s. frv. af flugulínum, eru auðvitað skiptar skoðanir. eins og um íleira, en fyrir duglega einhendis-flugu- stöng, úr fisléttu og sterku gerfiefni, (en ég hygg að slíkar stengur muni halda áfram að ryðja sér til rúms við alla sil- ungs- og laxveiði næstu árin), vel ég mér fyrst hægsökkvandi skotlínu no. 10 og jafnvel 11, ef maður telur sig þurfa á lengstu köstum að halda. Hið nýja númer þannig línu er ST-10-S. Að vísu getur seinna S-ið, sökk, þýtt hægtsökkvandi eða hraðsökkvandi línu, og tel ég því mikils virði að óska eftir hægsökkvandi línu, því að hraðsökkvandi línur álít ég að VEIÐIMENN! Geri við veiðistengur og hjól. Einar Þ. Guðmundsson. Njálsgötu 3. Simi 20290. 24 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.