Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Síða 21

Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Síða 21
Hrygna xrið holugerð. Myndin er úr hókinni THE SALMON, eftir próf. J. W. Jones, hinn sama, sem talað er um hér i greininni. Samhliða stokknum er skýlið, þar sem mér liefur vinsamlega verið leyft að sitja marga kalda daga, og ennþá naprari nætur, þegar dr. J. W. Jones var að taka hina frægu hrygningar-kvikmynd sína. Sú mynd sýnir ekki aðeins háttu laxins fyrir hrygninguna, meðan á henni stendur og á eftir. Hún sýnir líka hið furðulega hátterni hængseiðanna. Þrjá vetur dvaldi ég hvað eftir annað hjá dr. Jones, þegar hann var að gera athuganir sínar á því, sem fram fór í stokknum, og ég get því fullyrt með góðri sam- vizku, að allar niðurstöður mínar. bæði sennilegar og ósennilegar, eru byggðar á eigin sjón og raun. Ég ætla ekki að rita um annað en það, sem ég hef sjálfur séð. Gröftur og gerð gotholunnar. Einn eða tveir af rannsóknarmönnum fyrri tíma héldu því fram, að hængurinn græfi holuna, sem hrygnan gýtur í, og notaði sporðinn sem skóflu. Við fyrstu sýn gæti þetta virzt þannig, en við nán- ari athugun hefur komið í ljós, að hæng- urinn á engan þátt í þessu verki. Hrygn- an hefur þar allan veg og vanda, og henni er sannarlega sárara en svo um sporð sinn, að hún noti hann sem skóflu. í þess stað leggst hún á hliðina, beygir og réttir eldsnöggt aftari hluta búksins, einkum styrtluna, og knýr fram öldu- sog í vatninu, sem færir til steina og myndar þannig grófina. Þess er óvíða eða hvergi getið í göml- um heimildum, hve hrygnan gætir þess vandlega, að á botni gotgrófarinnar myndist hola með lygnu, eða því sem næst lygnu vatni. Þessi hola, sem er að- eins 3 eða 4 þumlungar að þvermáli, er hreiðrið þar sem hrognin eiga að liggja næstu þrjá mánuði (eða þar um bil, eftir hitastiginu) þangað til þau klekjast út sem kviðpokaseiði. Það er undravert, hve Veiðimaðurinn 11

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.