Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Qupperneq 19

Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Qupperneq 19
vísu að enn er þungi á úti í hringiðunni, straumþungri, en miklu kyrrari en fyrir ofan brúnina og í fossinum. En það get- ur bara verið slíið, nógu er það þungt og mikið. Það er að minnsta kosti breyt- ing á orðin. Þetta fer allt öðru vísi í vatn- inu en áður. Jú, það er auðvitað bara slíflákinn, sem situr eftir á línunni og veldur þunganum, en fiskurinn á bak og burt. Nei, það er kvikt. Ég finn nú að það er hreyfing, hann syndir. Og heit fagn- aðarbylgja fer aftur um lúna limi. Hann er enn á. Og nú finn ég að ég hef beint samband við hann, finn fyrir hverri hans hreyfingu. En það fylgir böggull skammrifi. Stóra sh'flygsan fylgir enn með í kaupunum og sést nú greinilega. En í fossinum hefur hún runnið niður línuna og girnið og lagst á hausinn á laxinum. Það er eins og hann hafi orðið spakur við það, að fá á sig þessa húfu. Hann er nú orðinn þægur og ljúfur, farinn að slæpast. Enda búinn að stökkva rösklega, og svo var skrokkskjóðan niður fossinn Það segir eftir sem minna er. Veiðimaðurinn er líka farinn að ’ýjast. Skiöarrar niður götupaldrana niður af há- bakkanum og vindur inn á hjólið. Lax- inn lætur nú teyma sig upp á grynningu. Öðru hvoru glampar á hvítan belginn á honum, er hann leggst á hliðina. Það er auðfundið að hann er að gefa sig. Nú sést vel hvað hann er stór, og gleði gagntekur veiðimanninn. Félagi veður dálítið út í og sporðtekur hann, en miss- ir hann, og hann dettur aftur niður í vatn:ð með skvampi, og ég er á nálum að það slitni úr honum. Og aftur er hann sportekinn, en það fer á sömu leið, hann smýgur aftur úr greip, og ég fyllist vax- andi stolti yfir stærð lians og mikilleik. En eigi má sköpum renna og brátt ligg- ur hetjan yfirbuguð á bakkanum, eins og hver annar fiskur á þurru landi, eftir frækilega vörn. Og svo fær hann „naade- stödet“. Flugan sýndist agnarlítil í þessum stóra haus, og undur að hún skyldi halda í öllum þessum sviftingum. Mér finnst langur tími liðinn síðan hann tók, en þegar litið er á klukkuna, reynist það vera aðeins rúmar 20 mínút- ur. Ég sezt nú niður á grasbakkann, feg- inn og glaður og læt líða úr lúnum lim- um og slakna á strengdum sinum. Fé- lagarnir, Svavar bróðir rninn og Ágúst Ólafsson, kringganga þann stóra og dást að honum, meðan þeir sötra laxasnafs- inn, kurteisir menn og þakklátir. „Þetta er kandidat", segir Ágúst. „Hvað segirðu, kandidat“?“ ,,Já, kandidat", endurtók Ágúst, og vegur laxinn með augunum, „tilvonandi keppandi um flugubikarinn, maður“. Ég helli aftur í staupin. — Lifandis- ósköp er nú yndislegt við hana Laxá. — Grasið að liggja í, niðurinn að hvílast við, sólin að þurrka af manni svitann. — Og félagarnir að rabba um væntanlega upphefð og frægð hins sigursæla veíði- manns. — Ó, þú sæla, dásamlega veiði- mannalíf! Hann var nú veginn á staðnum. 21 pund, alltaf það. Eftir góða hvíld og endurnæringu á árbakkanum var veiðimaður léttstígur upp að bílnum, með laxinn í hendinni og stöngina á öxlinni. — Englendingur Veiðimadurinn 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.