Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Qupperneq 38

Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Qupperneq 38
auðvitað ekki talin hér með, fremur en endranær. Frágangur veiðibókanna er ekki lýta- laus, fremur en fyrri daginn. Eins og skýrslan hér á undan ber með sér, eru nokkur brögð að því, að þyngd laxanna sé ekki skráð eða veiðistaða getið; og kyn 30 laxa er ótilgreint. Þessi hroð- virkni er lítt afsakanleg, því að menn hafa nægan tíma til að færa veiðibæk- urnar sómasamlega. Mjög fáir geta um veðurfar (vindátt, sólfar, úrkomu, vatns- hæð o .fl.) en sérstakir dálkar eru ætl- aðir fyrir þær upplýsingar í veiðibók- inni. Væri þetta alltaf skráð, gætu þeir, sem á eftir koma í ána, ýmislegt af því ráðið, og við samanburð á veiðiárum, sem síðar yrði gerður, væru slíkar upp- lýsingar nauðsynlegar. Og það skyldu veiðimenn jafnan hafa í huga, að þess háttar athuganir, ef gerðar yrðu, mundu fyrst og fremst verða í þágu þeirra sjálfra. Ekki hækkaði hlutfall flugunnar þetta sumarið, heldur hið gagnstæða. Nú var fluguveiðin aðeins 29%, en 32% árið 1960. Hafði verið 36% árið 1959. Hér stefnir því í öfuga átt við það sem æski- legt og eðb’legt væri. Skal ekki farið mörgum orðum um þessa öfugþróun nú, en vfsað til þess, sem um hana var sagt í jólablaðinu 1960 (54. hefti). En úr því að fluguveiðin er ekki meiri en þetta í Norðurá, sem tvímælalaust er ein bezta fluguá landsins, má ímynda sér, hvernig hlutfallið muni vera þar sem skilyrðin eru verri. Eitt dæmi skal nefnt, sem sýnir vel, hve allur hópurinn getur stundum ver- ið samtaka í maðkadorginu: f síðari hluta júlímánaðar veiddi átta manna hópur 36 laxa á þremur dögum, en svo sem kunnugt er, hefur úthlutunin verið jöfn allt veiðitímabilið, aðeins þrír dag- ar, tvö síðustu árin. Af þessum 36 löx- um var aðeins einn veiddur á flugu, eða 2,8%! Næstu menn á undan fengu 47 laxa, þar af 19, eða 40%, á flugu. Og þeir næstu á eftir veiddu 72 laxa, þar af 40 á flugu, eða 55,5%. Veiðiskilyrðin voru svipuð allan tím- ann, engar teljandi breytingar á vatni eða veðri, nema hvað áin fór aðeins minnkandi síðustu dagana. Veiði maðka- mannanna er minnst vegna þess, að lax- inn í Norðurá tekur maðkinn yfirleitt verr en fluguna á þessum tíma sumars- ins. T. d. voru 165 laxar af þeim 281, sem fengust á flugu í ánni s. 1. sumar, veidd- ir í júlímánuði. En hitt svo auðvitað tóm bábilja, að vonlaust sé að bjóða laxin- um flugu, þegar kemur fram í ágúst- mánuð. En sú kenning virðist hafa ver- ið trúaratriði flestra, sem veiddu í ánni á því tímabili s. 1. sumar, því að af 167 löxum, sem veiddust frá 19.—31. ágúst, eru aðeins 10 skráðir á flugu, eða 6%! íslenzkir stangveiðimenn hafa það orð á sér meðal nágrannaþjóðanna, að vera mestu maðkadorgarar við Atlantshaf, og meirihluta þeirra virðist annt um að halda þeim titli. V. M. Frá stjórn SVFR. Skrifstofa félagsins að Bergstaðastræti 12 B er opin alla mánudaga kl. 5—6,30 og frá 1. júní alla daga eftir hádegi, til 1. september. Sími 19525. Afgreiðsla Veiðimannsins er á sama stað Stjórnin. 28 Vekimaburinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.