Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Page 35
henti mjög sjaldan og óvíða í íslenzkum
veiðivötnum.
Skotlína no. 10 vegur um 18—19 gr, er
auðveld fyrir duglega og miðlungs dug-
lega einhendisstöng og mjög lipur í notk-
un fyrir veiðimanninn. Torpedólínan
GAF, úr silki, er t. d. hámarksbungi
Stórfiskavötn
í Alpaíjöllum.
Frá því er sagt í ritinu The Fishing
Gazette, að austurrískir stangveiðimenn
hafi nýlega gefið út pésa með ýmsum
upplýsingum um veiðiskap og veiðivötn
í Austurríki. Eitt af því, sem þar má lesa,
er að í sumum vötnum í austurrísku Ölp-
unum sé geysilega stór silungur. Hvað
ekki vera óalgengt að þar veiðist fiskar,
sem vega frá 40—50 ensk pund og nokkr-
ir hafa fengizt, sem voru 60 ensk pund
eða jafnvel þar yfir. Mun þetta vera urr-
iði.
Ekki er þess getið sérstaklega, hvort
þessir boltar hafa veiðst á stöng, en svo
verður þó að ætla. Ekki voru þó svo stór-
ir vatnasilungar á skrá yfir heimsmetin,
sem kom í einhverju erlendu veiðiriti fyr-
ir um það bil 10 árum og var í meginat-
riðum tekin upp í 21. hefti Veiðimanns-
ins.
Hærra í ölpunum eru góð bleikjuvötn
og í lækjum er bæði urriði og bleikja.
Gæti verið gaman fyrir íslenzka stang-
veiðimenn, sem leið kynnu að eiga um
Austurríki, að kynna sér þetta betur og
ef til vill freista gæfunnar við þá stóru,
ef svo bæri undir. Ritstj.
torpedólína í veiðiskap með einhendis-
stöng, og er ca. no. 7, og vega þó fremstu
30 fetin ekki nema 12—15 gr. Það er því
augljóst, að kastlínan „stendur“ betur
í vindi heldur en torpedólínan, og þó
er torpedólínan að þessu leyti harðari af
sér en „dobbeltaðeraða“ línan. Og eitt
er það ennþá, sem mér finnst mæla með
skotlínunni, en það er, að það tekur
mann aðeins örfáar mínútur að skifta yf-
ir frá hægsökkvandi línu til flotlínu, en
flotlínur eru allt að því ómissandi fyrir
okkur, sem erum vanir þægindunum við
að hafa flotlínu til veiða á sérlega grunnu
og lygnu vatni, og þar sem við viljum
veiða, eða draga fluguna, sérlega hægt,
án þess að eiga sífellt á hættu að „missa'
hana í botninn. Vilji maður geta skift
sæmilega auðveldlega milli flot- og sökk-
línu með torpedo- eða dobbeltaperaðri
línu, þarf á hinn bóginn að hafa tvö hjól,
sitt með hvorri línunni meðferðis, eða
tvær spólur (sína með hvorri línunni) á
sama hjólið.
Fislétt og sterk einhendis flugustöng,
hægsökkvandi skotlína no. 10 á hjólinu,
og önnur flot-skotlínuhönk í vasanum, og
auðvitað spillir ekki sú þriðja — hrað-
sökkvandi — fyrir þau sára fáu tilfelli,
þegar við þurfum að drífa fluguna niður
í hröðum straumi eða niður á mikið
dýpi, — og við erum færir í allan „flugu-
sjó“. Og þó — áður en á hólminn er
komið, er skynsamlegt og reyndar alveg
nauðsynlegt að kynna sér og æfa meðferð
tækjanna, til þess að kunna á þeim skil
og geta beitt þeim sómasamlega þegar
á reynir. Flest stangaveiðifélög landsins
aðstoða væntanlega meðlimi sína og fleiri
varðandi þá hlið málsins.
Veiðimaðurinn
25