Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Side 44
Fiskifræðideildarinnar í Seattle. Um
helmingi seiðanna var sleppt í eldistjarn-
ir stöðvarinnar, og hinum hlutanum
var sleppt í eldistjarnir eldisstöðvarinn-
ar í Issaquah, sem er um 55 km leið ofar
við sama vatnasvæði. Tveimur mánuðum
síðar gengu seiðin út úr eldisstöðvunum
áleiðis til sjávar, en þau voru merkt með
uggastýfingum, til þess að laxarnir þekkt-
ust aftur. Af seiðum úr Issaquaheldis-
stöðinni var klipptur hægri kviðaruggi.
Voru þau 9,4 sm á lengd og vógu 10,5 gr
að meðaltali. Af seiðunum úr Tilrauna-
eldisstöð Fiskifræðideildarinnar var
klipptur vinstri kviðaruggi. Þau voru
10,6 sm á lengd og voru 14,8 gr að þyngd.
Sérstakar ráðstafanir voru gerðar til
þess að finna merkta fiska. Skoðaðir voru
rúmlega þrjú hundruð þúsund silfurlax-
ar, og fundust tæplega 400 merktir lax-
ar frá því í júlí 1952 þar til í febrúar
1954, en meirihluti veiðanna fer fram í
sjó. Þá var leitað að merktum löxum við
Sooseldisstöðina, þaðan sem laxaseiðin
voru flutt í janúar 1952, og í rannsóknar-
stöð Fiskimálastofnunar Washingtonríkis
í Minteránni. Á hvorugum staðnum
fundust silfurlaxar, sem á vantaði kvið-
arugga. Upp í tjarnir Tilraunaeldisstöðv-
ar Fiskifræðideildarinnar gengu 124 full-
orðnir silfurlaxar, sem allir höfðu verið
merktir þar áður, og gengið út úr stöð-
inni. 195 laxar þaðan höfðu veiðst í sjó
svo vitað sé. 70 laxar gengu upp í Issa-
quaheldisstöðina, sem þar höfðu verið
merktir, og einn að auki, sem merktur
hafði verið í Tilraunaeldisstöðinni, og
hafði hann því farið villur vegar. Vitað
var um, að veiðst liöfðu 186 silfurlaxar
úr Issaquahstöðinni í sjó. Eins og áður
segir, er Issaquaheldisstöðin ofar við sama
vatnasvæði og Tilraunaeldisstöðin, og
þurftu Issaquahlaxarnir að ganga rétt
framan við Tilraunaeldisstöðina á leið
sinni „heim“, og villtust engir þeirra upp
í hana.
Niðurstöðurnar af tilraun þessari eru
þær, að enginn silfurlax fullvaxinn gekk
úr sjó upp í móðurána, Soosá, en þeir
komu aftur upp í fósturstöðvarnar, þ. e.
upp í eldistjarnir Tilraunaeldisstöðvar
Fiskifræðideildarinnar og í stofnlaxaþró
Issaquaheldisstöðvarinnar. Aðeins einn
hinna merktu laxa af 195, sem gengu aft-
ur upp í eldisstöðvarnar, villtist. Það var
hængur frá Tilraunaeldisstöðinni, sem
gekk upp í Issaquahstöðina.
Hliðstæðar rannsóknir á átthagavísi
þeirri, sem hér hefur verið skýrt frá, hafa
verið gerðar á fleiri laxategundum. Sví-
ar hafa t. d. gert tilraunir með Atlants-
hafslaxinn — laxinn okkar — og komizt
að hliðstæðum niðurstöðum. Hefur dr. B.
Carlin, fiskifræðingur, nýlega gert grein
fyrir þeim. Gönguseiðunum hefur verið
sleppt í ár, og hafa þau komið aftur í
árnar, þar sem þeim var sleppt, jafnvel
þó að gönguseiðin hafi aðeins verið fá-
eina daga í fósturánum áður en þau
gengu í sjó. Þegar laxarnir hafa náð full-
um þroska hafa þeir síðan í yfir 99% til-
vikum gengið aftur í fósturárnar.
T ilraunaeldisstöðvar.
Það er á færi fleiri en stórþjóða að
stunda fiskeldi með góðum árangri og
standa framarlega á því sviði. Undirstað-
an undir góðu gengi er að taka á vanda-
málunum með skynsemi og festu, en það
verður frekast gert með því að reka til-
34
Veiðimaðurinn