Læknablaðið - 01.10.2022, Qupperneq 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 431
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Bæta á launakerfi, breyta vaktakerfi og laga búningsaðstöðu sérnámslækna til að bæta
starfsaðstæðurnar, minnka óánægju og bæta jafnvægi milli starfs og einkalífs
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Breyta launum og aðstöðu til að bæta
líðan sérnámslækna Landspítala
Alls hafa 15 af 140 hætt sérnámi á Landspítala
síðustu tvö ár. „Ástæðurnar eru mismunandi
en álag spilaði stórt hlutverk,“ segir Margrét
Dís Óskarsdóttir, kennslustjóri gæða- og um-
bótaþjálfunar sérnáms á Landspítala, sem rýndi
í þær í kjölfar niðurstaðna könnunar Félags
almennra lækna í upphafi árs. Þær sýndu að
43,5% almennra lækna á Landspítala hafa oft
eða mjög oft upplifað einkenni kulnunar síðustu
12 mánuði. Einnig að 25% væru því frekar eða
mjög sammála að hafa íhugað alvarlega að fara í
veikindaleyfi.
„Slegin, hissa en þó ekki óvænt,“ segir Mar-
grét Dís um niðurstöðurnar. Þær hafi sýnt stöð-
una skýrt. „Ekki var hægt að líta framhjá þeim
án þess að bregðast við.“ Gunnar Thorarensen,
yfirlæknir sérnáms á Landspítala, segir þær
hafa sýnt andrúmsloftið svart á hvítu. „Alvarleg
teikn voru á lofti sem gaf okkur tækifæri til að
bregðast við.“
Margrét Dís og Amelia Samuel, verk-
efnastjóri í gæðadeild, leiddu og greindu 8
meginástæður vanlíðunar sérnámslækna.
1. Ekkert kerfi sem fylgist með því hvort sérnáms-
læknar vinni umfram skyldu
2. Brotnir ferlar sem leiði til endurtekningar verka
3. Skortur á samræmdri stjórnun milli klíník-
urinnar og sérnámsins
4. Engar áætlanir um hvernig dekka eigi klíníska
vinnu þegar skortur er á starfsfólki
5. Starfslýsing kennslustjóra ekki í samræmi við
væntingar til hlutverksins
6. Óljóst hver ber ábyrgð á starfsumhverfi sér-
námslækna
7. Skortur á forvörnum og aðgerðum við veikind-
um í starfsliðinu
8. Laun fari ekki saman við reynslu sérnámslækna
og ábyrgð
Aðgerðaáætlun liggi nú fyrir. Margrét nefnir
að settir hafi verið á stofn stuðningshópar fyrir
sérnámslæknana. „Þeir hjálpa þeim að takast
faglega á við starfið,“ segir hún en sýtir að fleiri
nýti sér þá ekki. „Þetta er eina úrræðið sem
miðar beint á einstaklinginn. Önnur snúa að því
að bæta vinnuumhverfið.“ Gunnar segir að eitt
úrræðanna sé að bregðast við launamálunum
sérstaklega.
„Launin eiga að endurspegla framvinduna í
sérnáminu og hefur áætlun um það verið sam-
þykkt í framkvæmdastjórn. Stefnt er að því að
hún komi til framkvæmda á næstu vikum,“ segir
hann.
„Þá ætlum við að gera vaktakerfið að betur
smurðri vél og endurhanna vaktirnar í samræmi
við áhyggjurnar sem sérnámslæknar lýsa,“ segir
hann. Breytingarnar eigi að hluta til að verða að
veruleika í október. Meðal aðgerða er einnig að
bæta búningsklefa sérnámslækna.
„Sérnámslæknar hafa herbergi sem hefur nýst
til að skipta um klæðnað, hvílast, sofa og vinna,“
segir Amelia. „Aðstaðan er langt frá því sem
talist getur viðunandi en við sáum að enginn
taldi sig ábyrgan fyrir aðstöðunni þar sem sér-
námslæknar tilheyra ekki neinni ákveðinni deild
á spítalanum.“
Amelia segir mikilvægt að finna jafnvægið
á milli sérnámsins og klínísku þjónustunnar.
Þau skipuleggi því vinnustofu kennslustjóra,
umsjónarsérnámslækna og yfirlækna til að finna
þetta ákjósanlega jafnvægi og skilgreina hlut-
verk hvers og eins betur.
„Við munum setja áætlanir til að sjá meiri
skilvirkni í störfum og mæla árangurinn árlega.“
Þá segja þau að könnunin um líðanina verði
endurtekin í febrúar árlega. Þau eru öll á því að
þetta sé aðeins byrjunin. „En við bæði stefnum
að og vonumst til að sjá merki um betri líðan sér-
námslækna strax í næstu könnun.“
Gunnar Thorarensen, yfirlæknir sér-
náms Landspítala, Amelia Samuel,
verkefnastjóri í gæðadeild, og
Margrét Dís Óskarsdóttir, kennslu-
stjóri gæðaverkefna Landspítala,
grípa til aðgerða gegn óánægju sér-
námslækna. Mynd/gag