Læknablaðið - 01.10.2022, Síða 42
470 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
„Við sjáum ekki lát á þróuninni í ópíóíða-
fíkn,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir,
forstjóri Vogs og framkvæmdastjóri lækn-
inga hjá SÁÁ, um þá staðreynd að aldrei
hafa fleiri látist af ofskammti lyfja en í
fyrra. Samkvæmt tölum Embættis land-
læknis létust 46 manns, 9 fleiri en árið á
undan. Tíu þeirra við sjálfsvíg.
„Margt hefur verið gert til að sporna
við útskrift ópíóíða,“ segir Valgerður,
sem sat í starfshópi heilbrigðisráðherra
gegn lyfjamisnotkun. Hópurinn skilaði
9 aðgerða lista árið 2018. „Búið er að ýta
stórum hluta hans í framkvæmd.“ Til
að mynda hafi lögum verið breytt svo
lyfjafræðingar gætu skipt upp pökkum og
afhent minna magn.
„Eftir sem áður er nóg af lyfjum á
markaði.“ Hún nefnir einnig að bráða-
móttaka Landspítala skrifi helst ekki út
ópíóíða og aðgengi að Naloxon, sem notað
er þegar þörf er á tafarlausri neyðarmeð-
ferð vegna ofneyslu ópíóða, hafi verið
aukið. „Naloxon er úði, jafnnauðsynlegur
búnaður og hjartastuðtæki,“ segir hún.
Yfir 200 eru nú í gagnreyndri lyfja-
meðferð við ópíóíðafíkn á göngudeildinni
á Vogi; meðferð sem dregur úr fíkn og
fráhvörfum. „Þeir hafa heldur aldrei verið
fleiri,“ segir hún. Tíu úr hópi þeirra sem
hafa gengist undir meðferðina létust í
fyrra en alls hafi um 600 farið í hana.
Fíkn í ópíóíða vex stöðugt. Aldrei hafa fleiri látist hér á landi vegna lyfja en í fyrra.
„Það gerist þrátt fyrir að gripið hafi verið til fjölda aðgerða,“ segir Valgerður
Rúnarsdóttir læknir og hvetur lækna til að skima fyrir og greina fíkn áður en
þeir ávísi lyfjunum
Lyfjaandlát
aldrei fleiri
áhyggjur af ávísunum á lyfið, sem hefur
fjölgað aftur,“ segir Valgerður. Dregið hafi
verið úr ávísun á lyfið þegar hætt hafi
verið að niðurgreiða það. „Þetta er mjög
varasamt lyf fyrir þennan hóp sem mis-
notar lyf að einhverju leyti.“
Valgerður segir mikilvægt að heilbrigð-
isstarfsfólk átti sig á því að fólk á ópíóíð-
um líti ekki endilega þannig á að það sé
haldið fíkn og uppfylli ekki staðalímynd
fólks með fíkn. Mikilvægt sé að gera
greiningu og ef um fíknsjúkdóm er að
ræða er það sérstakt heilbrigðisvandamál
sem þurfi skilning og inngrip.
„Ávísun ópíóíða við langvinnum
verkjum getur verið vítahringur fyrir
marga, líka án þess að um fíkn sé að ræða.
Lyfjagjöfin heldur áfram en aldrei fara
verkirnir,“ segir hún. Fólkið þurfi önnur
úrræði en lyf.
„Fólk með fíknsjúkdóm er að deyja
alltof ungt. Við verðum að bregðast við
og hafa dyrnar í meðferð opnar, ekki síst
fyrir þá sem taka ópíóíða.“
Hún segir að bæði læknar og almenn-
ingur þurfi leiðbeiningar og hvetur lækna
til að vera meðvitaðir. Þeir þurfi að meta
áhættu á fíkn og gera greiningar. „Spyrja
þarf fólk beint út um neyslu þess og meta
áhættuþætti og ávísa ópíóíðum með
sérstöku umhaldi ef áhætta á fíkn er til
staðar.“
„Lyfjameðferðin fækkar sannarlega and-
látum. Hún bjargar mannslífum.“ Fjallað
var um málið á málþingi á Læknadögum
í mars.
Valgerður gagnrýnir áhugaleysi yfir-
valda á meðferð SÁÁ við ópíóíðafíkn.
Samningur um hana hafi ekki verið upp-
færður frá því að ritað var undir hann
árið 2014. „Hann nær til 90 sjúklinga en
við þjónustum yfir 200 manns. Við segj-
um ekki nei við neinn því meðferðin er
lífsbjargandi fyrir alvarlegri ópíóðafíkn,“
segir hún. Ekki hafi verið gengið í að upp-
færa hann.
„Það er ekki hlustað á okkur. Við köll-
um út í tómið. Efast er um að við segjum
rétt frá,“ segir hún og ítrekar þó að allir
vilji sinna málefninu betur. Gjörðir þurfi
hins vegar að fylgja orðum.
Í fréttum RÚV um andlátin segir að
flogaveikislyfið pregabalín hafi fundist í
blóði 15 þeirra sem létust. „Við erum ekki
að standa okkur þar og höfum miklar
Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs og fram-
kvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, hvetur lækna til að
greina hvort sjúklingar séu í áhættu á fíkn áður en þeir
ávísa ópíóíðum. Mynd/gag
V I Ð T A L
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Ávísun ópíóíða við langvinnum
verkjum getur verið vítahringur
fyrir marga, líka án þess að um
fíkn sé að ræða. Lyfjagjöfin heldur
áfram en aldrei fara verkirnir.“