Arkitektúr og skipulag - 01.04.1988, Side 13
létta tengibyggingu milli húsanna,
svo aö gamla byggingin nyti sín og
útveggir hennar sæjust ganga inn í
glerbygginguna. Um leið yröi tengi-
byggingin notuö sem umferðarskáli
til aö brúa hin mismunandi hæöar-
plön og tengja sýningarsalina.
Ef nýtt safn heföi verið skipulagt frá
grunni, heföu sýningarsalirnir veriö
látnir tengjast hver öörum beint, en
þarna var ekki möguleiki á því. Það
varö aö líta á hvern sal sem sjálf-
stæöa heild, þannig aö það er alltaf
farið um þetta stóra opna rými inn í
fjórar óskyldar einingar. Inni í söl-
unum er hægt aö einbeita sér og
njóta myndlistarinnar, en svo er
komið inn í allt annað umhverfi til
að dreifa huganum þess á milli.
Þess vegna var valið kaldara efni í
tengibygginguna en sýningarsalina,
til aö undirstrika þessi áhrif.
„Þaö var reynt aö fara varlega meö
arkitektúrinn og hafa bygginguna
sem látlausasta, til aö draga ekki at-
hyglina frá myndlistinni, heldur að
hann yröi eölileg umgjörð um
myndirnar. Þaö má svo sem deila
um, hvort þaö eigi aö vera gylltur
rammi í kringum „Kjarval" eða hvort
hann á að vera rammalaus. Eins má
líka deila um þaö, hvort húsið á ekki
aö hafa vissan karakter, sem ýtir
undir myndirnar. En það er alveg
Ijóst, aö þaö er mikill munur á því,
hvort veriö er aö byggja listamanna-
skála eöa listasafn þjóöarinnar, sem
er varðveislusafn. Listamannaskáli
er yfirleitt til þess aö sýna list síns
tíma, list dagsins í dag. Hún er oft
„aggressív" og hrá og til þess aö
vekja menn til umhugsunar. Þá er
oft gott aö hún sé í grófu og hráu
umhverfi. Svo þegar þessi list er
orðin gömul eöa þjóðfélagið hefur
breyst, þannig aö hún þykir ekki
lengur „aggressív", þá er hún kom-
in í gylltan ramma. Þá þarf hún fínt
gólf og annað umhverfi. Það er þaö
sem við vorum aö fást viö. Viö vor-
um aö byggja listasafn, en ekki sýn-
ingarskála."
nówf Guðrún Valdi-
marsdóttir útskrifaðist
frá Arkitektarskólanum
Árósum sumarið 1983.
Hún hefur unnið á
vinnustofu Geirharðs
Porsteinssonar og hjá
Rúnari Gunnarssyni
arkitekt. Hún er nú með
eigin rekstur. fifi