Arkitektúr og skipulag - 01.04.1988, Síða 74
íbúðarhús byggt fyrir uþb. þrjá-
tíu árum í Mosfellsdal, fjarri þétt-
býli, en þó ekki með það í huga
að íbúarnir stunduðu landbúnað.
99 Porsteinn Porsteins-
son er verkfræðingur að
mennt eftir nám á ís-
landi og í Pýskalandi.
Hann hefur starfað hjá
Verkfræðiþjónustu
Guðmundar Óskarsson-
ar, Tæknideild Kópa-
vogsbæjar og Skipulag-
sstofu höfuðborgarsvæð-
isins. Einnig hefur
Porsteinn kennt sam-
göngutækni við Verk-
fræðideild Háskóla ís-
lands síðastliðin þrjú
ár. Hann rekur nú ráð-
gjafastarfsemi í Kópa-
vogi. CC
völd, meö sínar langtímaáætlanir, eru æriö
svifasein að bregðast viö vandanum og hefur
víöa komið til vandræða.
Margir í Bandaríkjunum óttuðust að sveitirn-
ar myndu fyllast af óhrjálegum kofum, líkt og
sum sumarbústaðahverfi hérlendis, til dæmis
við Þingvallavatn. Þessi ótti hefur verið
ástæðulaus með öllu, því flest af þessum hús-
um hafa verið vel byggð og umhverfi þeirra
grætt upp og vel hirt. Þeim, sem flutt hafa úr
stórborgum í dreifbýli á síðustu árum, hefur
verið annt um umhverfi sitt og plantað og
komið upp gróðri. Hafa umhverfisáhrifin verið
jákvætt metin.
Eins og í upphafi greinarinnar sagði gerast
hlutirnir oft fyrst í Bandaríkjunum. Ekki er
nokkur vafi að sama þróun, að sjálfsögðu með
nauðsynlegri aðlögun, á eftir að verða hér. En
það þarf að varast að gera sömu skyssurnar
og Bandaríkjamenn og glíma við sömu vanda-
mál og þeir. Þetta mætti gera með því að
tryggja í sveitarstjórnar- og skipulagslögum að
hægt verði að hafa stjórn á breytingunum.
Vonandi lærum við af mistökum annarra svo
þetta verði ekki eins og með mengjareikning-
inn sem farið var að kenna hér á landi eftir að
þeir vestra höfðu gefist upp á honum og tekið
upp gömlu góðu stærðfræðina.