Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Blaðsíða 32
Cittie of Yorke.
meðal annars vegna meiri matarsölu í hádeginu. Ekki vilja allir
skyndimat, hamborgara og kók, í hádegismat. Margir fullorðnir vilja
heldur koma á „pöbbinn" og fá sér glas af bjór og eitthvert snarl, en
í öllu falli er sá matur fljótframreiddur og ódýr og einhvem veginn
afslappaðri en skyndimaturinn.
Ekki hefur augunum heldur verið lokað fyrir kvöldmatnum. Með
auknum fjölda tveggja fyrirvinna og ungu fólki sem kýs nú æ oftar að
lyfta sér upp með því að fara út að borða hefur aðsókn að bjórstofum
aukist vemlega. Hin nýja „trend“ í þessari menningu eru hinir
svokölluðu „restaurant-barir“, eða „café-barir“. Þar er „themað“ oft
50' tímabilið, rokkið og annað er minnir á það. Staðir eins og Hard
Rock Café, Maxwells og Henry J. Bears, sem þó leggja mismikla
áherslu á það hvort þeir séu meira bar eða restaurant, eru mjög
vinsælir og þó einna helst hjá unga fólkinu.
Hinn hefðbundni breski „pöbb“ hefur þó haldið, að miklum hluta til,
sama útliti síðastliðin 100 ár. Einnig hefur verið reynt að byggja á
sömu forsendum, bæði í rekstri þeirra og hönnun. Samt sem áður
lifum við á nýjum tímum. Viktoríutímabilið er löngu liðið. Þarfir
fólks, venjur og væntingar hafa breyst mikið í tímans rás.
Segja má að síðan 1940 hafi hönnun „pöbba“ verið kæruleysislega
sálarlaus. Þau atriði sem hafa gert þessa stofnun aðlaðandi í sögulegum
tengslum, þ.e.a.s. skynjun á órofnu samhengi og fantasíu, hafi verið
fjarlægð. Þessi atriði hafa samt verið uppgötvuð aftur í næturklúbbum.
Eftir uppgötvun laser- og neonljósa, skyndiþoku og fleira þessháttar
hefur diskótekunum verið breytt úr fátækra manna næturklúbbum í
tilkomumikið næturumhverfi.
Á margan hátt eru diskótek á seinni hluta tuttugustu aldar sambærileg
„pöbbum“ á Viktoríutímabilinu. Þau hafa sömu tilfinningu fyrir
flótta, félagslyndi og hávaða, sömu áherslur á lýsingu, endurkast
yfirborðsflata, sömu tækifæri á ötulli sjálfssýningu og leynilegu
tveggja manna tali. Verk hönnuðarins er að búa til viðeigandi
umgjörð um nýjan tæknibúnað. Útkoman er þó oft lítilfjörleg, og þá
vegna þess að hinu viðkvæma jafnvægi er ekki haldið.
Dæmi um nýja tilhneigingu í pöbbamenningunni er tísku-barinn
Blitz, en hann hefur verið vinsæll sem nýmóðins bar með svipmóti
næturklúbba. Hann dregur að margt fólk nokkur kvöld í viku. Ungir
30
ARKITEKTUR OG SKIPULAG
Cittie of Yorke.
Krá frá Viktoríska tímabilinu
borgarbúar þurfa vettvang þar sem þeir geta tjáð sig, með stíl við sitt
hæfi, óþvingaðir af siðavenjum hins hefðbundna „pöbbs“.
Hin nýja heildarhugmynd að bjórkrá er byggð á markaðshópunum
18-25 ára, þ.e.a.s. þeim sem eru tilbúnir að ferðast einhverja
vegalengd til að fá góðan mat, góða hönnun og góða þjónustu, auk
fastagesta. Sem dæmi má nefna „pöbb“, þar sem notuð voru kunnugleg
„post-modemisk element", sem skila aftur öllum þeim týndu og
lífsnauðsynlegu hlutum fantasíunnar. Pöbb þessi, Da Vinci's, er
gerður upp úr gömlu trésmíðaverkstæði. Á framhlið hússins eru tvær
dóriskar súlur settar upp á abstrakt hátt sitt hvorum megin inngangsins
með neon-skilti fyrir ofan. Er þetta fyrirboði um það hvers erað vænta
er inn er komið.
Þrátt fyrir allar þessar breytingar er ekki rétt að gefa það í skyn að hinn
hefðbundni breski „pöbb“ frá Viktoríu- og Edvard- tímabilunum sé
að verða safngripur. Flestir „pöbbar“ í Englandi eru ennþá með
hefðbundnu sniði.
The Wintness Box er nýlegur „pöbb“ byggður á svæði þar sem mikið
er um lögfræðiskrifstofur. Hugmyndin var sú að búa til „pöbb“ þar
sem fengist heitur og kaldur matur á matmálstímum, með þægilega
hlýju andrúmslofti líkt og klúbbur á kvöldin, þegar þetta svæði er að
mestu leyti mannlaust. Stigi, bar og annað timburverk er að mestu úr
mahogny. Mikið af húsgögnum, ljósum, myndum, speglum o.fl. eru
ektahlutirfráViktoríutímabilinu,keyptirog uppgerðirfyrir„pöbbinn“.
Við endurnýjun þessara gömlu hluta eru notuð ekta efni. Leður er
leður en ekki plast, viðurinn mahogny en ekki plast eftirlíking og
stólarnir bólstraðir upp á gamla mátann en ekki úttroðnir svampi. Þó
þetta sé dýrt hjálpar það mikið við að ná réttum hughrifum. Húsgögnin
eru slitin, og eru jafnvel bara aðlaðandi, í stað skínandi plastáferðar.
Dökkleit húsgögnin geraheildarsvipinn fremur þungbúinn, en skínandi
málmhlutimir gefa hinn nauðsynlega ljóma til þess að gera
heildarsvipinn ekki dauflegan. Þegar á heildina er litið er þetta vel
heppnaður staður sem verkar vel á viðskiptavinina og innréttingar
sem þurfa lítils viðhalds við.
Sumir nýir „pöbbar“ bjóða hins vegar upp á harða bekki og sag, þar
sem notaðir eru m.a. bitar úr gömlum hlöðuloftum og annað í stíl »»
við það. Dæmi um slíkan „pöbb“ er The Glassblowers á Piccadilly í
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
31