Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Blaðsíða 26
gerði hann uppdrætti að einbýlis- og fjölbýlishúsum, sem mörg hver
eru hluti af perlum þess tímabils í sögu Winnipegborgar.
Verktakasamkeppni tíðkaðist nokkuð á þessum tíma upp úr aldamótum
og tók Páll þátt í fjölmörgum þeirra. Hann var einnig talsmaður
háhýsa og gerði tillögur að nokkrum í Miðbæ Winnipegborgar.
Engin þeirra voru þó byggð þar sem bygginga- og skipulagsreglugerðir
borgarinnar á þeim tíma heimiluðu ekki hærri byggingar en sex hæðir.
Áhugi hans á slíkum byggingum er þó skiljanlegur og sérstaklega í
ljósi þess, að hann nam byggingalist í Chicago á þeim tíma er kempur
á borð við D. Adler og L. Sullivan gengu þar um velli. Meðal verka
Páls voru fjölmargar kirkjur, skólabyggingar og iðnaðarhúsnæði.
Sumt af þessu stendur enn og ber höfundi sínum glöggt vitni.
Kirkjubyggingar Páls voru af ýmsum gerðum hvað varðar stíl og
byggingarefni. Meðal annars gerði hann tillögu að timburkirkju í
Gimli og teiknaði viðbyggingu við kirkjuna í Aurora, Illinois á homi
Main og Root Streets. Auk þess sem að framan er talið tók Páll meðal
annars þátt í samkeppni um byggingar fyrir löggjafarþing
Manitobafylkis en fyrir það skyldi reisa á sínum tíma næststærsta
þinghús Norður-Ameríku. Hann vann önnur verðlaun í samkeppni
um Borgarspítalann í Edmonton svo nokkuð sé nefnt.
Hugur Páls var á margan hátt eilíflega tengdur íslandi. Hann skrifar
vart það sendibréf þar sem ekki er á einhvern hátt minnst á „gamla
landið”, og byggir þar á endurminningum, enda var hann orðinn 16
áraþegarfjölskyldan fór vestur. Páli vareinsog mörgum landsmönnum
þar vestra umhugað um framfarir á Islandi. I dag gera því miður
margir sér ekki grein fyrir hversu mikið framlag þeirra var til
uppbyggingar og framfara á íslandi. Sem dæmi má nefna að þeir
lögðu fram digra sjóði til stofnunar Eimskipafélags Islands. Ekki
máttu berast fréttir af mannskaða eða sjóslysum við Island, að Vestur-
Islendingar hæfu ekki fjársöfnun til stuðnings hinum bágstöddu í
„gamla landinu”, og þannig mætti lengi telja. Páll lagði sitt af
mörkum til stuðnings og uppbyggingar á Islandi. Hin pólitíska
umræða um bankamál á Islandi um aldamótin barst að sjálfsögðu
vestur um haf og að mati Páls þurftu bankar virðulegar byggingar. Því
Memoiual4 Church <* Sanford * Manito&a
íU-SÖPTTollN
Mív 1920
Ewl M..OGmens Atöawí
Vítnr.ip«g! ,Men.
i j i Ms
Nor-Th öiob Elevation
Reaf. Elevation
24
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG