Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Blaðsíða 44
Hús IBM við Skaftahlíð.
GUNNAR HANSSON
inn mikilvirkasti húsameistari Islands á síðustu áratugum,
Gunnar Hansson, er fallinn frá.
Þeir sem þekktu Gunnar vel sjá á bak hlýjum viðkvæmum
listamanni sem alltaf vildi hag íslenskrar byggingarlistar sem mestan.
Þeir sem ekki höfðu tækifæri til að kynnast honum sjálfum geta séð
í verkum hans mann sem vann í kyrrþey og fór eigin leiðir.
I bestu verkum sínum sýndi Gunnar vel hvað í honum bjó og þar ruddi
hann ótrauðurnýjum hugmyndum braut. Hérnægirað minnaá fyrsta
yfirbyggða torgið á íslandi, Hlemm, en fyrir þá byggingu hlaut hann
menningarverðlaun DV árið 1979. Lfklegt má telja, að ef sú bygging
hefði ekki verið reist þá hefði orðið mun lengra t.d. í yfirbyggða
göngugötu í Kringlunni og yfirbyggt Eiðistorg.
Að brydda upp á nýmæli eða að ryðja nýjum hugmyndum braut er
vanþakklátt verk, ekki síst á Islandi og ekki síst í byggingarlist. Að
Raðhús við Hvassaleiti 101 - 113.
renna þá slóð hugsunarlaust sem þegar er troðin eða endurtaka það
sem aðrir hafa gert, með eigin útúrdúrum, er af allt öðrum toga.
Sá arkitekt sem vill takast á við þann vanda að búa til eitthvað nýtt,
eitthvað sem ekki hefur verið gert áður, hefur vindinn í fangið frá
upphafi. í fyrsta lagi þarf hann í fullri auðmýkt af hjartans lítillæti að
sannfæra sjálfan sig um að viðkomandi hugmynd sé góð - eigi rétt á
sér. En hann þarf líka að sannfæra fjölmarga aðra - húsbyggjanda,
byggingarnefnd, skipulags- nefnd, eftirlitsaðila, tæknilega ráðgjafa
og marga fleiri um það sama. Frá upphafi byggingar til enda þarf hann
að samræma og halda utan um starf fjölmargra aðila og tryggja að á
endanum myndi vinna þeirra listræna heild. Það er sjaldgæft að einn
og sami maðurinn sé gæddur öllum þessum hæfileikum, en góð
byggingarlist er Ifka sjaldgæf.
I öllum listgreinum eru átök um strauma og stefnur, menn og málefni,
42
ARKITEKTUR OG SKIPULAG