Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Blaðsíða 70
* ^jfnifrgsgeta
I i,rmanns á k,t'
Stotólyfta i Kongs-
B. GHIyfta (toglyfta) ' J) -
C. Borgarlyfta (toglrj '
D. Stólalyfta i Suðufj ^
E. Barna/byrjendaiyíP ^brekku
• F. Kennsluiyfta u£2. -»700
G. Topgiyfta (Arma1 <Arrnanr»s) 700
rt“**S*skinsbrekkuiyí1
Göngubraut
J. BláfjaUaskaii
i.100
700
► 700
1.200
500-
5QD *
-»7*00
Lyftur
rið 1973 varð Bláfjallafólkvangurinn að veruleika. Höfðu
þá skíðaáhugamenn kannað heppilegustu staðsetningu fyrir
nýtt skíðasvæði. Borgarstjóm Reykjavíkur leitaði eftir
samstarfi við önnur sveitarfélög um stofnun fólkvangsins, með
sameiginlegan rekstur skíðaaðstöðu í huga. Að Bláfjallanefnd standa
Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Seltjamames, Njarðvík, Grindavík,
Miðneshreppur, Gerðahreppur, Bessastaðahreppur, Vogar og
Selvogshreppur.
Fyrstu skíðalyftumar vom teknar í notkun 1973 og hafði þá verið
lagður vegur og byggður 100 ferm. skáli. Frá þessum tíma hefur
uppbygging verið mjög ör. Nú hefur Bláfjallanefnd í rekstri samtals
12 lyftur, þar af eru 2 stóllyftur, 1000 fermetra skála, Bláfjallaskála,
5 km af upplýstum göngubrautum fyrir skíðagöngufólk, upplýstar
brekkur, þrjá vandaða snjótroðara, góðan veg og bílastæði. Tvö
skíðafélög em starfandi á svæðinu og er gott samstarf milli
Bláfjallanefndar og félaganna. Hefur nefndin leigt skíðalyftur þeirra
og jafnframt styðurhún þá við byggingu skíðaskála, gegn því að þeir
nýti þá fyrir almenning, bæði varðandi veitingaaðstöðu og
salemisaðstöðu.
Þrátt fyrir mjög hraða og kostnaðarsama uppbyggingu, virðist
uppgangur íþróttarinnar vera enn hraðari. Sveitarfélögin hafa lagt til
um 200 - 300 milljónir, miðað við núvirði, í framkvæmdir á staðnum
á þeim 15 árum sem svæðið hefur verið rekið. Það hefur því verið
góður skilningur hjá sveitarfélögunum á þessari tómstundaiðju, og
ber að þakka það.
Það er metnaðarmál hjá Bláfjallanefnd að svæðið þjóni almenningi
eins vel og hægt er. Við höfum verið mjög heppin með starfsfólk, en
við margvíslega erfiðleika er að eiga í rekstrinum. Þar má fyrst nefna
veðrið, veðraskipti eru mjög ör og m.a. höfum við fengið orð fyrir að
gefa rangar og gamlar upplýsingar, bflastæði ekki nægilega rudd,
lyftur ekki allar virkar, of mikil örtröð í skálanum o.s.frv. Það er rétt
að þessar aðstæður koma upp, hins vegar ef vandinn er skoðaður, þá
er dæmið einfaldlega þannig, að eftir erfitt veður er margt sem þarf að
kippa í lag. Moka veginn, en oft er erfitt að fá tæki, því aðalvegir hafa
forgang, ýta af bflastæðunum, troða brekkur, brjóta klaka af öllum
lyftum og oft þarf að fara upp í staurana til að ná honum. Starfsfólk
okkar byrjar að vinna á milli 5 og 6 á morgnana, til þess að geta náð
að opna klukkan 10.00 að morgni. Bemm þetta saman við t.d.
Austurríki, þar sem veður er stöðugt, troðið frá 17.00 daginn áður og
gengið frá því sem þarf að gera, til að hafa allt tilbúið að morgni.
Stefna Bláfjallanefndar varðandi þjónustu er áframhaldandi
uppbygging á svæðinu í samstarfi við félögin sem þar em. Með
skálunum, sem Fram og Ármann eru að byggja, eykst sú þjónusta
verulega. Ætlunin er að færa lyftu, sem Breiðablik átti, í gilið sem
tengir Framsvæðið við Kóngsgilssvæðið og með þvf auðveldast
samtenging þessara svæða. Jafnframt hefur samtenging við
Sólskinsbrekkusvæðið lagast mikið við gerð nýju bílastæðanna og f
janúar var opnuð ný bamalyfta á svæðinu. Er hún af sömu gerð og
lyftan sem reist var s.l. vetur við Bláfjallaskálann. Næsta lyfta, sem
áhugi er á að reisa, er stóllyfta úr Kóngsgili upp á topp, þar sem
topplyfta Ármanns liggur í dag. Æskilegt væri að fá 4 sæta lyftu, sem
gæti flutt 2400 manns á klukkustund. Þess má geta að burðargeta
núverandi lyfta er 9000 manns á klukkustund. Jafnframt hefur verið
tekið frá landsvæði fyrir gistiskála.
Hafa sveitarfélög óskað eftir að reisa slíka skála, einkum fyrir
skólanemendur. Jafnframt er stefnt að því að útbúa svæði fyrir
skíðastökk og ýmsar nýjar skíðagreinar, sem farið er að stunda
erlendis og má þar nefna Telemark, Freestyle, Timex skiathlom og
fleira mætti nefna.
Áhugi á skíðagöngu hefur aukist mjög mikið á síðustu árum. Merktar
hafa verið skíðabrautir og verður því starfi haldið áfram. Má ætla að
fjórðungur gesta, sem kemur á svæðið, sé skíðagöngufólk, og
jafnframt eru margir sem stunda bæði svig og göngu.
Ef verð á skíðakortum er borið saman við það sem er í öðrum löndum,
þá er það ekki hátt. Dagskort í Bláfjöllum kostar 550 kr. og er það
u.þ.b. helmingur þess verðs sem þjónustan kostar í Alpalöndunum. í
fyrra var sú ákvörðun tekin að lækka verulega árskort á svæðinu. í
ár kostar árskort bama kr. 3.100 og fullorðinna kr. 6.300. Þettavar
gert til þess að auka áhuga almennings á skíðaferðum að kvöldlagi.
Opið er þrjú kvöld í viku til kl. 22 þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga. Er það dásamleg afþreying að fara að kvöldlagi í fjöllin
og góð hvfld frá taugastrekkjandi verkum dagsins. Stefnt er að því
að tekjur nægi fyrir rekstri svæðisins, en sveitarfélögin leggi til
kostnað við framkvæmdir. Síðastliðinn vetur tókst það, einkum þar
sem veðrið var okkur hliðhollt, en það ræður miklu um tekjumöguleika.
Við getum ekki verið annað en ánægð með þann mikla áhuga sem
almenningur sýnir íþróttinni. Vafalaust hefur styttri vinnutími haft
hér áhrif, aukinn áhugi almennings á heilsu-rækt og ekki síst að
skíðaíþróttin er vafalaust sú heilsurækt sem öll fjölskyldan getur
sameinast um. Það er von okkar að sveitarfélögin sýni í verki að þau
kunni að meta þessa vinsælu og hollu íþrótt, sem skíðaiðkun er, og við
gerum okkar besta til að uppfylla óskir almennings um að geta notið
hennar sem best
Kolbeinn Pálsson
68
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
69