Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Blaðsíða 62
Seljahverfi í Breiðholti voru íbúðalóðir 52% hverfanna. Lóðir fyrir
verslanir og opinberar þjónustubyggingar (V.S.O.-lóðir) tóku að
meðaltali 6%, götur 16% og opin svæði 24%.
Yfirleitt liggur hlutur íbúðalóða á bilinu 50 - 65% af heildarlandstærð
íbúðahverfa (skólahverfa) og er hlutfailið yfirleitt lægra í stærri
íbúðahverfum þar sem fleiri þjónustustofnanir og stærri opin svæði
koma inn í my ndina. Dæmi um íbúðah verfi með hátt hlutfall íbúðalóða
er Fosvogshverfi með 67% af heildarlandstærð undir íbúðaióðir.
A Borgarskipulagi er miðað við eftirfarandi meðalstærð ióða eftir
húsagerðum; einbýlishús 700 m2, raðhús 400 m2 og að hver íbúð í
fjölbýlishúsi hafi 200 m2 lóð (lág blokkarbyggð). Fjöldi íbúða á ha
íbúðalóða eftir húsagerðum verður því: einbýlishús 14 hús á ha,
raðhús 25 íbúðir á ha og fjölbýlishús 50 íbúðir á ha.
Ef miðað er við að 55% lands fari undir íbúðalóðir verður þéttleiki
húsagerða af heildarlandstærð íbúðahverfis þessi: um 8 einbýlishús
á ha, 14 raðhús og 28 íbúðir í fjölbýlishúsi.
Ef miðað er við að 55% lands fari undir ibúðalóðir og að jöfn skipting
Allt land undir götur og stórar einbýlishúsalóðir.
Litlar einbýlishúsalóðir.enginn gegnumakstur og opin leiksvæði.
Stórt opið svæði, blöndun húsagerða, tumhús og raðhús, aðeins aðkeyrslur að bílastæðum.
sé milli húsagerða, 1/3 af hverri, verður þéttleikinn 13 íbúðir á ha.
Mynd 6 sýnir að einbýlishúsalóðimar taka upp 54% alls lands undir
íbúðalóðir, þrátt fyrir að aðeins þriðjungur fbúðanna séu einbýlishús.
Ef 60% lands fara aftur á móti undir íbúðalóðir og 50% íbúða eru
í fjölbýlishúsum og afgangurinn skiptist jafnt milli einbýlis- og
raðhúsa verður þéttleikinn 16 íbúðir á ha.
í Aðalskipulagi Reykjavíkur 1984-2004 er miðað við meðaltals-
þéttleikann 14 til 16 íbúðir á ha í nýjum íbúðahverfum á
framtíðarbyggðasvæðum. Mynd7 sýniraðþéttleika-eðanýtingartölur
segja ekki allt um gæði hönnunar á byggð.
Kostnaður vi& ný hverfi. Samkvæmt könnun Þórarins
Hjaltasonar verkfræðings á Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins
kostaði um 4.2 milljónir, miðað við verðlag í ársbyrjun 1983, að
leggja götur, stfga, holræsi og önnurveitukerfi íeinn ha íbúðasvæðis,
auk landverðs. Samsvarandi tala miðað við seinustu áramót er um 13
milljónir. SamkvæmtupplýsingumfrágatnadeildBorgarverkfræðings
ermeðaltalskostnaðurviðgöturogholræsi (ánlandverðsogveitukerfa)
á 1 haíbúðasvæðisum lOmilljónirenkostnaðurinnermjögbreytilegur
60
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG