Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Blaðsíða 25
PAUL M. CLEMENS
Fyrsti íslenski arkitektinn?
Fjölskyldumynd frá Winnipeg um aldamótin . Paul M. Clemens sitjandi fremst til hægri.
Með íslenskum útflytjendum til Vesturheims, og þá sérstaklega
til Manitoba og Winnipeg, hefst mikill sorgarkafli í sögu
íslands. Margur mætur maðurinn yfirgaf fósturjörðina og
kom aldrei aftur, nema þá í einhverju andans verki. Nærri mun láta
að um 20% þjóðarinnar hafi nurlað saman fyrir vesturför. 1886 er
fjölskylda þess manns, er hér um getur, búin að selja allt og flutt
vestur um haf. Þó var sá munur á, að förinni var ekki heitið til
Winnipeg eins og flestra annarra, heldur stórborgarinnar Chicago.
Þar var sest að fyrst um sinn. Paul M. Clemens fæddist í Reykjavík
4. ágúst 1870. Hann nam arkitektúr í Chicago og hóf að námi loknu
vinnu á teiknistofum í Illinoisfylki. Ferill'hans í Bandaríkjunum
fram að aldamótum er þó lítt kunnur. Fleira mun hafa átt hug hans
en byggingalist, því snemma á námsferli sínum mun hann hafa
aðhyllst kenningar hagfræðingsins Henrys George, og var mikill
stuðningsmaður þeirra alla tíð. Hann varjafnframt virkur þátttakandi
í félagsskap sem nefndist „Single tax reform club“. Um þetta
hugðarefni sitt ritaði hann greinar í blöð og tímarit, bæði í
Bandaríkjunum og Kanada, þó alltaf undir dulnefni. Skýringin á því
mun vera, að kenningar Henrys George þóttu fullróttækar í þessu
landi tækifæranna. Því þótti mönnum eins og Páli, sem störfuðu og
áttu allt sitt undir einkageiranum, betra að láta skoðanir sínar í ljós
undir dulnefni. Eins og áður er getið, er lítið vitað um feril Pauls M.
Clemens fram að 1900. Þó er vitað að upp úr aldamótum fær hann
þriggja vikna frí af teiknistofu í námunda við Chicago og fer meðal
annars að heimsækja foreldra sína sem þá voru fluttir til Winnipeg,
auk þess sem Winnipeg var þá og er höfuðborg íslendinga í Norður-
Ameríku.
Þessar þrjár vikur urðu að rúmum 20 árum, því stuttu seinna var hann
kominn með eigin stofu og gnægð verkefna fyrir íslenska athafnamenn
í Winnipeg. Starfsemi þessara íslensku verktaka í Winnipeg upp úr
aldamótum er kafli út af fyrir sig, og mun lauslega verða fjallað um
þá í grein síðar. Þó má geta þess að þar voru á ferðinni margir
sérstæðir og skemmtilegir menn, sem með byggingastarfsemi komu
undir sig fótunum í hinu nýja landi.
Nokkrir þeirra urðu vel þekktir hér á landi, og gengu um þá sögur og
ríkidæmi þeirra í góðum ævintýrastíl. Þeir byggðu ýmsar tegundir
húsa allt frá einbýlishúsum til járnbrautarstöðva og annarra sérhæfðra
bygginga, þó mun aðalstarfsvettvangurinn hafa verið á sviði
íbúðabygginga. Aður en lengra er haldið í grein þessari er rétt að gera
ættfróðum arkitektum og öðrum svolitla grein fyrir uppruna Pauls M.
Clemens.
Eftir að til Vesturheims kom hefur fjölskylda Pauls M. Clemens
notað þetta ættarnafn, enda má segja að Clemens- nafnið sé hin
ágætasta engilsaxneska af föðumafni Runólfs Klemenssonar sem var
einn af forfeðrum Pauls. Runólfur þessi var um tíma forstjóri
Innréttinganna í Reykjavík. Á íslenska tungu mun Paul hafa verið
skírður Páll Melsteð og verið Jónsson, og látum við þar með ættartali
lokið. Um feril Páls arkitekts og lífshlaup almennt yrði allt of langt
mál að fjalla hér í stakri grein, nema um væri að ræða framhaldssögu.
Mörg verka hans em að sjálfsögðu nátengd athafnasemi íslenskra
verktaka í Winnipeg og byggingasögu borgarinnar. Fyrir þessa »»
RENEWAL OF CERTIFICATE OF REGISTRATION
//ecrelary 4 /7 /oanac/a //fye
'Ítúnni/iep,.........UZjöl.. July \ /9/S.*..
Olhtfí tfi ln cprítfg ............Pavl Uelsted...Glemens......................
ee
Áo/cter- o^ /ierttficafe namAer............?.......,, /vavinejj, Aa/y, fiaid i/e s/nnaa/ Z/eneuta/ /i/e
o//ve c/o//ari ($5.00} /aí i/ere/y, reneutec/ /ii Toerti^ícate oj/ /Tteejibiration fl>r t/e y,
enc/intj Ja7 iit, 19/ 4,....
VOUCHER NO, 2 28............
. '/<rr,t*ry CÁs OHoard.
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
23