Arkitektúr og skipulag


Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 9

Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 9
HALLIR SUMARLANDSINS Frá ómunatíð höfum við íslendingar flutt með okkur minningu um sumarlandið, þar sem gefur að líta iðjagræna velli, þar sem gaukar gala, laukar spretta og svanir syngja á tjömum. A sveimi okkar yfir kalda eyðisanda norðursins í ellefu hundruð ár höfum við ekki getað gleymt þessu sumarlandi. Þótt meira en 90% íslensku þjóðarinnar hafi nú flutt í þéttbýli þá hefur okkur enn ekki tekist að búa okkur þetta drauma- land. Það næsta sem margir hafa komist þessum draumi hefur verið að byggja sér sumarafdrep í túnfætinum heima eða á fallegum stöðum sem eitthvað komust í líkingu við sumar- landið. Fyrir nokkrum áratugum opnaðist okkur sá möguleiki að fljúga á vit sumarlanda erlendis og dvelja þar í leiguhúsnæði nokkrar vikur á sumri. Þessa möguleika hafa tugþúsundir íslendinga notfært sér á hverju ári að undanfömu og snúið til baka sólbrúnir og úthvíldir til þess að takast á við næsta vetur. Minna hefur verið gert til þess að nýta tiltæka tækni og möguleika til þess að koma upp okkar eigin „sumarlöndum“ hér á landi þar sem við gætum fundið hvíld og gróðursælt umhverfi jafnt sumar sem vetur. Aðrar þjóðir, sem eiga jafnvelekkiaðgangaðjarðhita, einsogt.d. Hollendingarhafa samt víða komið sér upp slíkri aðstöðu. Aðgangur að þannig „sumarlöndum“ ætti að geta orðið mun ódýrari en flugfar til sólarlanda og sjálfsagður hluti af lífi alþýðu manna hér á landi. Margt bendir samt til þess að hér sé breytinga að vænta. Margir íslenskir hönnuðir hafa að undanfömu bent á hvernig við getum skipulagt byggð og hannað mannvirki sem taka mið af íslensku veðurfari og aðstæðum og henta okkur mun betur en verið hefur. Sumarbústaðir sem hingað til hafa fyrst og fremst verið til sumardvalar í nokkra mánuði eru nú í vaxandi mæli byggðir sem heilsárshús þar sem fólk býr og jafnvel vinnur mikinn hluta ársins. Að íslendingar gætu sjálfir eignast fasteignir á erlendri grund og komið þar upp sínum eigin „sumarlöndum“ til orlofsdvalar fyrir unga sem aldna hefur allt fram á síðustu ár verið fjarlægur draumur, en slík fjárfesting hefur nú verið heimiluð. A öllum þessum sviðum höfum við nú möguleika á að láta drauminn um sumarlandið rætast ef viljinn er fyrir hendi. Gestur Ólafsson ARKITEKTUR OG SKIPULAG 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.