Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 89
ÆVINTYRII SNÆLANDSSKOLA
HÖF. Aðalsteinn Ingólfsson
Aðalsteinn Ingólfsson er listfræðingur að mennt og ritstjóri
menningarmála á DV. Hann er höfundu nokkurra bóka í íslenskri.
myndlist.
Ljósm: Ragnar Th. Sigurðsson.
Um veggmyndir Magnúsar Pálssonar. Magnús
Pálsson á að baki langan og fjölþættan listferil. í meir
en aldarfjórðung hefur hann beitt sér fyrir stöðugu
endurmati viðtekinna hugmynda í myndlistinni, innleitt ný og
róttæk viðhorf til listsköpunar og unnið að því að gera að engu
hefðbundin mörk milli lifnaðar og listar.
Bæði sem my ndlistarmaður og kennari hefur Magnús tvímæla-
laust haft mikil áhrif á hugarfar þeirrar kynslóðar íslenskra
myndlistarmanna sem nú fikrar sig fram eftir listabrautinni.
Sextugur að aldri á hann enn drjúga innistæðu í hugmynd-
abankanum.
Þótt sjálfsagt sé erfitt að finna samnefnara fyrir margháttaðar
framkvæmdir Magnúsar á listasviðinu, skúlptúra hans, bóklist,
geminga, listkennslu, leiklestra, þá komumst við sennilega
nær merkingu þeirra ef við höfum hugfast að rætur hans liggja
ekki í myndlist, heldur í leikhúsinu. A sjötta áratugnum
stundaði Magnús nám í leikmyndagerð, bæði í Birmingham
og Vínarborg, og vann síðan mörg verkefni fyrir íslenska
leikhópa.
Því var Magnús fær um að nálgast myndlistina tiltölulega
óbundinn af rótgrónum myndlistarlegum viðhorfum. Seint á
sjötta áratugnum, þegar myndlistin knúði dyra hjá honum, var
Magnúsi einnig styrkur að hvatningu og uppörvun vinar síns,
Dieters Roth, sem þá var búsettur á íslandi og vann að
uppstokkun á ýmsum viðteknum sjónarmiðum í myndlist.
Reynsla Magnúsar af leikhúsi skýrir einnig næmi hans á
87
ARKITEKTUR OG SKIPULAG