Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 74
MOTUN HONNUNARTEMA
Form starfsemi og form umhverfis
HÖF: TRAUSTI VALSSON
Trausti Valsson, f. 1946, lauk arkitektúr- og skipulagsnámi í
Berlín 1972 og doktorsprófi frá Berkeley 1987.
Krísuvíkurmiðstöð.
Vestrið og austrið mætast.
Miðstöð á miðju landinu.
Hönnunartemu í menningarsögunni í sögu
by gginggarlistar og skipulags hafa hönnunartemu verið
með ýmsu móti. Úr þessari grein menningarsögunnar
er okkur orðið byggingarstíll hvað þekktast og af þekktum
gömlum stílum má nefna rómanska stílinn, gotneska stílinn og
renaissancestílinn.
Það sem liggur að baki, eða hefur mótað byggingarstíla, getur
verið æði mismunandi og oft einkennast þeir bæði af
félagslegum og formrænum einkennum og í sumum tilfell- um
er þetta tvennt svo samhæft og tengt, að það myndar órofa
heild.
í slíkum tilfellum, í slíku umhverfi, er samband forms og
innihalds svo heilt og órofa að heimsmynd og lífsviðhorf
birtast fullkomlega í forminu - en jafnframt verður okkur ljóst
að lögmál formsins hafa jafnframt átt þátt í því að móta
heimsmynd viðkomandi tímabils eða viðkomandi stíls.
Mótun hönnunartema Á þessari öld umbrota og up-
plausnar hefur mjög losnað um þau bönd sem tengdu form og
innihald. Oft er gripið til einhverra útlitslegra formtema til að
reyna að auka samræmi í útliti, en oft er þetta svo úr tengslum
við starfrænt eðli viðfangsefnisins að úr þessu verður in-
nantómur formalismi.
Óskafyrirkomulagið er það, að hönnuðurinn fái að koma inn
í þróun starfshugmyndar þegar í upphafi og geti átt þess kost
að sveigja starfshugmyndir að aðstæðum staðhátta og öðrum
formrænum hugmyndum.
Undirritaður hefur nýlega orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
að starfa að mótun tveggja slíkra verkefna. I báðum tilfellum
er um félagslegar miðstöðvar í öflugu eyðilegu landslagi að
ræða.
Fyrra tilfellið er sá ásetningur Krýsuvíkursamtakanna að
byggja upp miðstöð og vinnuskóla í Krýsuvík fyrir unglinga
í vímuvanda og seinna verkefnið spratt upp úr því að hugmynd-
ir mínar um hálendisvegi hafa fengið hljómgrunn, en að
slíkum góðum vegum fengnum er auðvelt að reisa og reka
miðstöð, t.d.ráðstefnumiðstöð á hálendinu. Hefur forsætis-
ráðuneytið veitt mér styrk til að vinna að slíkum frum-
hugmyndum.
Um miöstöövarnar tvær Það sem einkennir staðhætti
beggja þessara miðstöðva er einmanalegt og gróðursnautt
landslag. í Krýsuvík er þetta eldfjallalandslag en á hálendinu
eru það gráir öræfasandar milli hvítra jökla.
En, mundi margur segja, er þetta ekki nokkuð ólíkindaleg
staðsetning fyrir starfsemi affélagslegum toga? Jú, það virðist
það í fyrstu, en þegar betur er að gáð leynast einmitt í þessum
staðsetningum mjög óvenjulegir möguleikar að ná fram sterkum
hönnunartemum, formrænum temum sem ríma við þau star-
frænu temu sem ég hef mótað með samstarfsmönnum mínum.
72
ARKITEKTUR OG SKIPULAG