Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 64
KÓPAVOGUR
Hugmyndasamkeppni um skipulag í Fífuhvammslandi.
HÖF. BIRGIR H. SIGURÐSSON
Birgir lauk prófi í landfræði frá H.í 1978 og meistaraprófi í
skipulagsfræðum frá University of Liverpool 1980. Birgir hefur
veitt Bæjarskipulagi Kópavogs forstöðu frá 1. september 1988.
Þann 11. maí s.l. kynntu bæjaryfirvöld í Kópavogi
niðurstöður í hugmyndasamkeppni um skipulag í
Fífuhvammslandi. Mtttaka var góð. Alls barst 21
tillaga. Fyrstu verðlaun hlutu ungir arkitektar, þeir Þorsteinn
Helgason og Palle Lindgaard.
Markmið með keppninni var að fá fram hugmyndir sem flestra
um það hvaða möguleika skipulagssvæði hefði að bjóða og
skapa umræðu um gerð byggðar í þéttbýli sem leitt gæti af sér
nýjar hugmyndir.Fífuhvammsland liggur austan Reykjanes-
brautar að Vatns-endalandi. Lega þess með tilliti til
höfuðborgarsvæðisins gaf tilefni til þess að huga sérstaklega
að nýtingu þess, hvernig best mætti með það fara. Því þótti
bæjaryfirvöldum í Kópavogi það fýsilegur kostur að leita eftir
hugmyndum sem flestra er láta sig skipulagsmál varða.
Skipulagssvæðið náði til 184 ha. Hér á landi hafði því aldrei
áður verið efnt til hugmyndasamkeppni á jafnstóru landsvæði.
Gera skyldi grein fyrir heildarskipulagi keppnissvæðisins og
að auki hugmy ndum höfunda að deiliskipulagi innan afmarkaðs
reits.
I keppnislýsingu var gerð grein fyrir óskum útbjóðenda, m.a.
um landnotkun og íbúafjölda, 6000-7000 manns í tveimur
skólahverfum. Bent var á helstu þætti opinberrar þjónustu sem
reiknað skyldi með, þar á meðal allt að 20 ha kirkjugarði.
Miðhverfi skyldi vera og í keppnislýsingu var vakin athygli á
ýmsum atriðum sem taka skyldi tillit til, svo sem lögunar og
legu eignarlanda ásamt gróðurreitum við sumarbústaði.
Hugmyndasamkeppnin var auglýst í fjölmiðlum 10. nóv.
1988. Skilafrestur rann út 28. febr. 1989.
Við mat á gæðum tillagna skyldi leitast við að líta jafnt
tilhugmynda að heildarskipulagi og deiliskipulagi og gerði
dómnefndin lista yfir matsatriði til notkunar við yfirferðog
Skýringarmynd með deiliskipulgi miðhverfis.
samanburð tillagna. Þau vörðuðu m.a. tengsl við aðliggjandi
athafnasvæði, umferðarkerfi, opin svæði, drög að deili-skip-
ulagi og heildaráhrif. Alls var um að ræða 47 atriði með
mismunandi vægi sem könnuð voru í hverri tillögu.
Ekki var búist við fullgerðum skipulagstillögum sem hægt
væri án breytinga að hrinda í framkvæmd. En auðveldlega má
sameina hugmyndir úr verðlaunatillögum og fá fram heil-
steypta byggð sem hefur eftirsóknarverða kosti og er nýr
kostur í mótun umhverfis fyrir komandi kynslóðir. í árangri
hugmyndasamkeppninnar felst gott veganesti fyrir
bæjaryfirvöld í Kópavogi við áframhaldandi skipulagsvinnu.
I dómnefnd sátu: Olöf Þorvaldsdóttir skipulagsnefndarmaður
(formaður), Kristinn Ó. Magnússon verkfræðingur, Richard
Björgvinsson bæjarfulltrúi, Guðrún Jónsdóttir arkitekt og
Hróbjartur Hróbjartsson arkitekt.
Dómnefndin ákvað að veita þrenn verðlaun og keypti auk þess
fjórar tillögur:
1. verölaun 3.340.000.-
Höfundur: Þorsteinn Helgason, arkitekt
Samstarf: Palle Lindgaard, arkitekt
Aðstoð: Páll A. Pálsson, félagsfræðingur
Anne Vibeke Sand, arkitektanemi
UMSÖGN DÓMNEFNDAR. Helstaeinkennitillögunnarer
mikil blöndun íbúða, atvinnu-starfsemi og þjónustu sem gerir
hana afar sérstæða. Rétthymt gatnanet með randbyggð í
miðhverfi við Reykjanesbraut tengist með aðalgötu hringlaga
kjama í Leirdal. Upp frá aðalgötunni er frjálslega mótuð
randbyggð.
I tillögunni er gerð mjög góð grein fyrir útivistarsvæðum og
62
ARKITEKTUR OG SKIPULAG