Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 44
LZB-arkitektar
HÖF: ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON
Okkur hafa borist fregnir af skipulagssamkeppni um
endumýjun hluta miðbæjar í Weil am Rhein, sem er
landamæraborg milli Þýskalands og Sviss og reyndar
er Frakkland skammt undan. Samkeppnin náði yfir
brautarstöðina í Weil og næsta nágrenni sem heitir Leo-
poldshöhe, og átti að leysa úr vandamálum sem þar hafa orðið
m.a. vegna sívaxandi gegnaksturs.
Úrslit voru tilkynnt 14. apríl sl. og komu fyrstu verðlaun í hlut
arkitektastofu í Basel í Sviss, sem nefnist LZB Architekten en
fullu nafni heitir stofan Larghi, Zóphóníasson und Blanckarts
AG.
Zóphóníasson stendur einmitt fyrir Bjarka Zóphóníasson,
íslenskan arkitekt sem starfar í Sviss og rekur þar arkitekta-
stofu í félagi við tvo starfsbræður sína. Stofa þeirra félaga er
nokkuð stór á íslenskan mælikvarða, 17 starfsmenn, þó svo
hún hafi ekki starfað nema í þrjú ár. Þeir félagar hafa fyrst og
fremst sinnt skipulagi og þá aðallega flókinna miðbæjarsvæða
og jámbrautarstöðvasvæða. Meðal staða sem þeir hafa skip-
ulagt má nefna LOCARNO, BELLIZONA, B ASEL HAUPT-
BAHNHOF, BASEL ST. JOHANN og DORNACH.
Auk nýhönnunar húsa og umsjón með byggingu þeirra færist
endurhönnun og viðgerð gamalla húsa í vöxt og sinna þeir
slíkum verkefnum sífellt meira. Reyndar taka arkitektar og
aðrirtæknimenntaðirmenn íbyggingariðnaðinum sífelltmeiri
þátt í viðhaldsverkefnum og endurbyggingu og hefur sú þróun
náð lengra á meginlandi Evrópu en hér á landi.
Bjarki Zóphóníasson er væntanlegur hingað til lands á málþing
samtaka kennara í arkitektúr austan (E A AE) og vestan (ACS A)
hafs sem haldið verður í Odda, húsi Háskóla Islands, dagana
6.-9. júlí nk. I
42
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG