Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 25
STEFAN JONSSON
Höf: HELGI HAFLIÐASON.
Helgi lauk námi í arkitektúr í Þrándheimi árið 1965. Hann
starfaði á teiknistofunni Höfða til ársins 1973, en hefur síðan rekið
eigin stofu.
Stefán Jónsson arkitekt.
Með Stefáni Jónssyni er fallinn frá sá arkitekt sem átti
hvað sterkastar rætur í jarðvegi íslenskrar menningar.
Þótt hann hafi verið 75 ára þegar hann lést, hinn 14.
mars s.l„ átti hann aðeins um aldarfjórðungs starfsferil sem
arkitekt.
Aður en hann sigldi til náms við Arkitektaskólann í Kaup-
mannahöfn, liðlega fertugur að aldri, hafði hann starfað hér
sem teiknari eftir skamma námsdvöl í teikni- og málaraskóla
í Kaupmannahöfn. Varð hann að hverfa frá því námi vegna
fjárskorts en tókst 25 árum síðar að láta gamlan draum rætast
með því að ljúka prófi í húsagerðarlist. Þá var hann orðinn vel
þekktur af störfum sínum við auglýsingagerð og bókaskreyt-
ingar, einnig fyrir merki og umbúðir af ýmsu tagi og ekki síst
frímerki en hann teiknaði nær öll frímerki sem gefin voru út á
Islandi á árunum 1948-58. Eru sum þeirra meðal þeirra allra
bestu sem gerð hafa verið hér á landi og má þar einkum nefna
handritamerkin frá 1953 og Skálholtsmerkin frá 1956.
Sem arkitekt vann hann flest sín verk í samvinnu við aðra en
það persónulega mark sem hann setti á þau einkenndist af
hógværð og virðingu fyrir efni og fagmannlegu handverki.
Hann gerði sér einnig far um að kynna sér aðstæður þeirra
sem hann vann fyrir þannig að verk hans mættu nýtast þeim
sem best. Hann sóttist eftir hinu einfalda og vegna þess að
hann slakaði ekki á listrænum kröfum urðu verk hans aldrei
leiðigjöm. Ef einhver sagði að verki loknu: „Þetta er svo
einfalt, ég hefði næstum getað gert þetta sjálfur”, leit hann á
það sem hið mesta lof því að þá vissi hann að vel hafði tekist
til. Gott dæmi um þetta er stækkun á Sauðárkrókskirkju.
Þeim sem hana sér, dettur ekki í hug að hún hafi nokkum tíma
litið öðruvísi út. Strax að námi loknu 1960, hóf Stefán störf
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
23