Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 10
AÐ FERÐAST í SKJÓLI Á FRÓNI
HÖF. VALDIMAR KRISTINSSON
Valdimar Kristinsson er viöskipta- og landfræöingur.
Eftir að góðvegir fóru að teygja sig um landið og nú þegar
jafnvel hillir undir að allur hringvegurinn verði lagður
bundnu slitlagi á næstu árum, er það einkum rysjótt
veðrátta, sem hamlar skemmtiferðum fólks hér innanlands frá
vori til hausts.
Stundum erkomist svo aðorði, aðfólk tali stöðugt um veðrið,
en enginn geri neitt í málinu. I afstæðri merkingu er það þó
ekki alveg rétt. Margt er gert til að verjast erfiðri veðráttu, en
aftur á móti færra til að lifa með henni.
f köldustu árum, sem reyndar urðu að öldum í íslandssögunni,
var landið lítt byggilegt miðað við þáverandi tækni. A þessari
öld er allt annað uppi á teningnum. Húsnæði er yfirleitt
rúmgott hér á landi og umfram allt hlýtt, fatnaður er skjólgóður
og vatnsheldur, ef fólk kærir sig um, og samgöngutæki þægileg
og oftast sæmilega örugg.
Áhugi á ferðalögum er nú mjög almennur, meðal annars vegna
lengingar orlofs, og því er mikilvægt að búa svo um hnútana,
að bæði innlendir og erlendir ferðamenn geti notið landsins
sem best, enda samkeppnin mikil frá útlöndum. Ef sérstaklega
er hugsað til hringvegarins, þá mundi mörgum henta að fara
hann frá einum áfangastað til annars, þar sem boðið væri upp
8
Með yfirbyggðum gönguleiðum má tengja saman ýmsar byggingar.
á góða þjónustu og aðstöðu. Ef miðað er við vikuferðir og
næturgistingu á hverjum stað, þá gætu áningastaðimir til
dæmis verið á eftirtöldum stöðum: Við Hreðavatn, Akureyri,
Mývatn, Egilsstaði, Homafirði,Skaftafelli, og við Skógafoss.
Á hverjum þessara staða þyrfti að reisa smáhýsi, er mynduðu
lítið þorp, sem jafnframt byði upp á ýmsa þjónustu: Verslun,
veitingar, leiktæki, einfalda íþróttaaðstöðu, sundlaug ef
mögulegt væri, hestaleigu, silungsveiði í nágrenninu,
sjónvarpskerfi fyrir allt svæðið o. fl. Tjaldað væri yfir torg
með nýjustu tækni, þar sem flestar þjónustugreinarnar stæðu
hlið við hlið og reynt að sjá til þess að fólk kæmist sem mest
í skjóli frá húsunum að torginu.
Ekki ætti þetta þó að koma í stað þess sem fyrir er, þar með
talin sveitagisting og Edduhótel, heldur að verða hrein viðbót
er miðaðist við aukinn ferðamannastraum, og er þá einkum
hugsað til íslendinga sjálfra, sem búa allt árið um kring við
íslenska veðráttu og hafa því jafnvel meiri væntingar um
sumarleyfi sitt heldur en margir útlendingar.
Þegar fólk getur sjálft meira og minna séð um matseldina hvert
í sínu húsi og hefur áðurnefnda þjónustu og tómstunda- gaman
við höndina, þá er stöðugleiki veðráttunnar ekki sama
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG