Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Side 42

Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Side 42
í öndvegi á smátorgi þessu, s vo hún „taki á móti” þegar gengið er úr kirkju. Stéttinni og Kristsmyndinni verði markaður rammi með tilklipptum trjárunnum. Þar verði einnig sjö keröld með vatni, og reistur kross sem blasir við þegar komið er að kirkjunni. Gegnt honum standi birkitré það sem nú er. Um þetta „smátorg” verðurtáknrænn inngang urað kirkjugarðinum, framhjá Kristsmyndinni, niður þrjú þrep niður í garðinn.Þessi breyting mun rýmka fyrir líkfylgd úr kirkjunni og gerumgjörð hennar virðulegri og táknrænni. ALTARI, ALTARISTAFLA, KÓR Altaristaflan er 4 m há þríhymd steintafla, sem táknar heilaga þrenningu og uppris- una. Taflan stendur frjáls aftan við miðjan kór. Hið neðra er taflan að meginhluta klædd með póleruðu blágrýti, en mótuð og steypt í brons hið efra.Eilítið á ská í töfluna miðja skerst krossform, sem á víxl er alveg opið eða fyllt með gleri og bronsi, og mun ljós flæða þar niður töfluna niður að altarinu, sem stendur framan við hana lítið eitt skásett. Altarisborðið er 25 sm þykk glerplata, sem hvílir á blágrýtisstöpli. Undirstaðan undir altaristöflunni gengur fram undir altarið. Fremsta brúnin er þykkt massíft eikarþrep og í gólfið framan við altarið er felld eikarrönd, sem afmarkar það og táknar grátumar. A miðju altarisins er dúkur með gylltu ívafi, sem gengur út af borðinu á langhliðum og myndar þríhymt form. Tveir kertastjakar á altari eru sérmótaðir í blágrýti og silfur. ■ 40 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.