Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 55

Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 55
í mörgum löndum er nú talið sjálfsagt að framkvæma kerfisbundið mat á umhverfisáhrifum fram- kvæmda, eins og staðarvali sorphauga, stóriðju og gerð meiri háttar akbrauta, áður en í þessar framkvæmdir er ráðist. Hér er um allt önnur vinnubrögð að ræða en „álit“ eins opinbers aðila fyrir annan. leg áhrif á umhverfi manna. Hér var bæði um að ræða mat á áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda á umhverfið, þ.e.a.s. land, loft, vatn, gróður og dýralíf, en einnig var leitast við að meta félagslegarafleiðingarframkvæmdanna.Þannigkerfis-bundið mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, sem kallað er á ensku „Environmental Impact Assessment” , er aðferð til þess að skilgreina, segja fyrir um og lýsa þeim áhrifum, sem líklegt má telja að ákveðin fyrirhuguð framkvæmd eða stefna hafi . Niðurstöður af þessari vinnu eru venjulega settar fram í greinargerð eða skýrslu, og frá því að umhverfismálalögin gengu í gildi í Bandaríkjunum hafameira en 15.000 fyrirhugaðar framkvæmdir verið metnar á þennan hátt þar í landi. Margar stærstu lánastofnanir heims, þar á meðal Alþjóðabankinn, hafa lagt áherslu á að slíkar athuganir séu nú gerðar fyrir þær framkvæmdir sem þær lána fé til. Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin hefur einnig látið þessi mál sig mikið varða undanfarin ár og gengist fyrir ráðstefnum og námskeiðum um þau víða um heim. Þessar hugmyndir hafa líka verið hafðar að leiðarljósi hjá mörgum ríkjum, sem hafa viljað koma þessum málum í betra horf, bæði hvað viðvíkur löggjöf og framkvæmd skipulags. Þannig hafa mörg lönd tekið upp svipaða aðferðafræði við mat á áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda og lögð var til grundvallar í bandarísku um- hverfismálalöggjöfinni. Bandaríkin og Kanada hafanú öðlast mestareynsluafþvíaðframkvæmaslíkarformlegarathuganir á áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda, en þar er slíkt mat bundið við framkvæmdir á vegum hins opinbera. í Bretlandi geta skipulagsyfirvöld krafist þess að framkvæmdaaðili láti framkvæma mat á áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda. Einnig geta viðkomandi skipulagsyfirvöld framkvæmt slíkt mat sjálf, eða ráðið til þess ráðgjafa. Ahrif margra fyrirhugaðra framkvæmda hafa þannig verið metin í Bretlandi, t.d. viðvíkjandi olíu- og gasvinnslu í Norðursjó, og Umhverfismálaráðuneytið breska hefur gefið út leiðbeiningar til skipulagsyfirvalda um framkvæmd slíks mats. Frakkland hefur einnig bundið í lög að fram skuli fara mat á áhrifum meiri háttar framkvæmda á franskri grund og hefur franska Umhverfismálaráðuneytið gefið út ábendingar um gerð slíks mats. Af öðrum löndum sem hafa látið þetta mál mjög til sín taka má t.d. nefna Holland, Irland og Astralíu. Efnahagsbandalagið hefur sent frá sér ábendingar um athuganir vegna fyrirhugaðra framkvæmda bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila, til þess að reyna að samræma aðgerðir ríkja Efnahagsbandalagsins á þessu sviði. Hjá Efnahags- bandalaginu hefur afstaða til þessa máls verið nokkuð mis- munandi eftir löndum. Þessi ríki hafa þó smám saman verið að gera sér grein fyrir því fomkveðna, að á skal að ósi stemma, og að haldbesta stefnan í umhverfismálum er sú að reyna frekar að forðast neikvæð umhverfisáhrif í tíma heldur en að reyna að byrgja brunninn eftir á. í ábendingum Efnahagsban- dalagsins er leitast við að skilgreina hvaða framkvæmdir það séu, sem æskilegt sé að láta athuga á þennan hátt, og er leitast við að setja þar ákveðin mörk. KYNNING Á NIÐURSTÖÐUM - EFTIRLIT Gert er ráð fyrir að niðurstöður slíkra athugana séu rækilega kynntar fyrir almenningi áður en ákvörðun um framkvæmdir er tekin, og sömuleiðis er gert ráð fyrir því að fylgst sé með því hvort áhrif af viðkomandi framkvæmd verði þau sömu og 53

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.