Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Side 65
Hugmyndasamkeppni umskipulagí Fífuhvammslandi
Y-firlitsuppciráttur mslikvardi 1:5000
Hugmynd að heildarskipulagi.
fjölbreytilegri notkun þeirra. Stór útivistarsvæði eru sunnan
aðalgötu og fjöldi minni garða innan einstakra reita og eru
ýmsar athyglisverðar tillögur settar fram um notkun þeirra.
Kirkja á Hvammkotshólum er skemmtileg hugmynd þótteðlileg
staðsetning sé við Hádegishóla. Athyglisvert er að skipta
kirkjugarði átvo staði. Rýmismyndun ívistgötu og húsagötum
er fjölbreytileg.
Umferðartengingar við Reykjanesbraut eru ekki í samræmi
við það sem fyrirhugað er og virðast óraunhæfar í tillögunni.
Tenging Stekkjarbakka er dregin of langt inn í hverfið og
gegnum íbúðarbyggðina. Hætta er á hraðakstri á aðalgötu að
hluta og virðist ekki hafa verið hugsað fyrir bifreiðastæðum
við hana.
Staðsetning fjölbýlishúsa næst Reykjanesbraut er óæskileg og
væru atvinnusvæði heppilegri þar. Dómnefnd efast um að svo
mikil þjónustustarfsemi sem tillagan gerir ráð fyrir í
íbúðabyggðinni geti þrifist.
Framsetning tillögunnar er lífleg og allskýr og í henni er gnótt
hugmynda.
2. verölaun 1.820.000.-
Höfundar: Knútur Jeppesen, arkitekt
Kristján Ólason, arkitekt
Aðstoð: Pétur Öm Bjömsson, arkitekt
Björk Gísladóttir
Stórt hringlaga miðsvæði með mikilli blöndun íbúða, stofn-
ana- og atvinnuhúsnæðis er eitt helsta einkenni tillögunnar.
Aðalsafngata bylgjast fram hjá opnu svæði í Leirdal og þéttri
byggðáSelhrygg.Styrkurtillögunnarfelsteinkumíáðumefndri
blöndun og skynsamlegri landnotkun. Tillagan gerir ráð fyrir
góðum tengslum svæðisins viðaðliggjandi byggð. Deiliskip-
ulag og skurðmyndir sýna skemmtilega rýmismyndun og
manneskjulegt yfirbragð byggðarinnar.
Tillagan er markviss og skýr. I greinargerð koma fram ýmsar
hugmyndir og ábendingar, m. a. um markmið með vali á
atvinnurekstri á svæðinu, t.d. fyrir aldraða, framkvæmd skip-
ulagsins, aðferðir við úthlutun lóða o.fl. Skemmtileg er
hugmynd um göngutengsl frá Leirdal að tjöm í miðbæ og
þaðan að Kópavogslæk.
Helstu annmarkar á tillögunni að mati dómnefndar eru:
Umferðarkerfi í miðhverfi líður fyrir að vera þvingað undir
strangt hringform. Sama gildir um íþróttasvæði í Leirdal.
Sums staðar í miðhverfi er göturými óþœgilega breitt en þá
dregur bogamyndun úr neikvæðum áhrifum þess. Tillagan
gerir misvel grein fyrir einstökum svæðum en framsetning er
skýr og greinargerð ítarleg.
3. veröíaun 1.520.000,-
Höfundar: Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt
Sigurður Einarsson, arkitekt
Líkan: Guðlaugur Jörundsson, módelsmiður
Tryggvi Tryggvason, arkitekt
UMSÖGN DÓMNEFNDAR: Helstaeinkenni tillögunnarer
að hún gerir ráð fyrir 3 íbúðarhverfum sem hvert um sig hefur
einaaðalgötu. Við aðalgöturnarerhelsta starfsemi hverfisein-
inganna ásamt hluta sameiginlegra stofnana svæðisins og
blandast íbúðabyggð. Tengibraut liggur eftir endilöngu
svæðinu og sameinar alla umferð þess. Aðalgötumar liggja
þvert á tengibrautina.
Tillagan er heilsteypt og rökrétt uppbyggð miðað við for-
sendur höfundar. Styrkur hennar liggur í íbúðabyggðinni og
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
63