Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Side 92

Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Side 92
ARKITEKTAFELAG ISLANDS NORRÆNN STJÓRNARFUNDUR Á LAUGARVATNI Dagana 15. 16. og 17. júní stóð Arkitektafélag íslands fyrir norrænum stjórnarfundi, sem haldinn var á Laug- arvatni. Fundir þessir eru haldnir árlega og skiptast norrænu arkitektafélögin á um að halda þá. Samstarf féla- ganna hefur í gegnum árin verið gott, en starfið að miklu leyti miðlun upplýsinga um ýmis atriði sem snerta störf arkitekta á Norðurlöndum. Það er yfirlýstur vilji stjómarmanna að auka samstarfið og styrkja það enn frekar. Af Islands hálfu sátu þennan fund Stefán Benediktsson, formaður AI, Stefán Örn Stefánsson, gjaldkeri, Jón Ólafur Ólafsson, ritari, Sigurður Harðarson, meðstjómandi og Lárus Bjömsson, framkvæmdarstjóri Arkitektafélagsins. Þá naut fundurinn aðstoðar Guðrúnar Jónsdóttur, Hafdísar Hafliðadóttur og Ólafs Halldórssonar, sem öll eru félagar í AÍ. Meginviðfangsefni þessa fundar voru tvö: Afmælisbarn á tímamótum - Arkitektafélag Islands 50 ára. Viðfangsefnið var rætt í ljósi áætlunar um stofnun Arkitektaskóla á íslandi. Framlag Islendinga var m.a. sýning á skuggamyndum, sem Ólafur Halldórsson, arkitekt FAI, stóð fyrir og erindi Guðrúnar Jónsdóttur, arkitekts FAI, um menntun í bygg- ingarlist á Islandi. Guðrún átti sæti í nefnd á vegum Menntamálaráðuneytisins, sem kannað hefurmenntunarmál í byggingarlist. Alit og niðurstaða nefndarinnar varð sú „að hefja skuli sem fyrst kennslu í byggingarlist á Islandi. Stefna beri að fyrrihlutanámi með samvinnu við erlenda háskóla um seinni hluta náms“. Það vakti athygli Islendinga hversu eindreginn stuðningur norrænu arkitektafélaganna er við þessi áform og þær hug- myndir, sem fram komu á fundinum um samnorræna eftirmenntun arkitekta. Þá fjallaði fundurinn um áhrif óskipts innri markaðar innan Efnahagsbandalagsins fyrir árslok 1992 á norrænt samstarf arkitekta og hvaða breytingar það hefur í för með sér, með tilliti til atvinnuréttinda og menntunar norrænna arkitekta. Hafdís Hafliðadóttir, arkitekt FAI, sat fundinn f.h. menntamálanefndar og kynnti það starf, sem unnið hefur verið á vegum nefndarinnar um þetta efni. Þá hafði Ebbe Melgaard, arkitekt SAL, ýtarlega kynningu á því starfi sem hann hefur tekið þátt í fyrir hönd danska arkitektafélagsins og arkitektaskólans í Kaupmannahöfn. Stefnt er að sameiginlegum vinnumarkaði innan EB, sem felur í sér rétt til að velja sér atvinnu og búsetu án tillits til landamæra og þar með gagnkvæma viðurkenningu á prófum og starfsréttindum. Unnið er að því að samræma menntunar- og starfsréttindi milli aðildarlandanna. Öll EFTA- ríkin hafa lýst áhuga sínum að hafa samstarf við EB- ríkin um menntun og starfsréttindi. Það er talið nokkuð víst að norrænir arkitektaskólar muni uppfylla kröfur EB, en þegar er ljóst að nokkrir skólar sunnar í álfunni verða að breyta námskrá sinni og námslengd til þess að uppfylla þessar kröfur. Hverju landi innan EB verður frjálst að setja strangari kröfur um menntun og starfsréttindi, en ekki í þeim tilgangi að mismuna borgurum frá öðrum EB- löndum. Þá þykir nokkuð ljóst að t.d. Danir geta áfram tekið óhindrað þátt í norrænu samstarfi og norrænir borgarar átt kost á að mennta sig og vinna í Danmörku, með þeim takmörkunum sem EB- kröf- urnar setja. Það er athyglisvert að réttindi byggingarfræðinga til þess að starfa sem „skrásettir arkitektar“ innan EB verða miklum takmörkunum háð og er það með réttu áhyggjuefni að íslensk byggingaryfirvöld gera minni kröfur til starfsréttinda en EB- ríkin munu gera. Þetta vekur spumingu um hvort núverandi fyrirkomulag á verndun arkitektastarfsheitisins þurfi endurskoðunar við. Stjómir arkitektafélaganna samþykktu í lok fundarins svohljóðandi ályktun: „NORRÆNIR ARKITEKTAR STYÐJA ÁFORM UM STOFNUN SJÁLFSTÆÐS ARKITEKTASKÓLA í REYKJAVÍK. Norrænu arkitektafélögin hafa setið sameiginlegan stjómar- fund á Laugarvatni dagana 15.-17. júní 1989. A fundinum var upplýst um áform þess efnis, að koma á fót kennslu í byggingarlist á Islandi. Löng hefð er fyrir því að senda væntanlega arkitekta til náms erlendis og hefur það verið innblástur fyrir þróun íslenskrar byggingarlistar. En það verður að horfast í augu við mikilvægi þess að byggingarlistamám eigi rætur í þeim sérstöku svæðis-bundnu og menningarlegu forsendum, sem einkenna Island. Reynslan sýnir að þeir arkitektaskólar, sem stofnsettir hafa verið á Norðurlöndum, hafa ætíð styrkt sjálfsímynd - og verið jákvæð viðbót við menningarlega, tæknilega og efnahagslega þróun þeirra svæða, sem þeir er staðsettir á. Stofnsetning 3ja ára grunnmenntunar mun verða góð byrjun í þá átt, að byggja upp fullnaðarkennslu í byggingarlist á háskólastigi. Það mun á sama hátt skapa forsendur fyrir rannsóknammhverfi, sem mun skapa framþróun í íslenskri bygging-arlist og byggingariðnaði í landinu. Norræni stjómarfundurinn mælir innilega með stofnun sjálfstæðs arkitektaskóla í Reykjavík og vill við stofnun hans stuðla að samvinnu við arkitektaskólana á hinum Norðurlöndunum, þar með talið kennara- og nemenda- skiptum. Norrænir arkitektar ályktuðu á sama fundi, að stuðla að samnorrænni eftirmenntun arkitekta og þar með styrkja norræn menningartengsl og samstarf‘. Arkitektafélögin munu snúa sér til Norðurlandaráðs hvað þetta varðar “. U 90 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.