Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Page 21

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Page 21
íslenskt landslag er líka auöllnd sem veröur aö nýta með varfærnl. breytingar á svo miklum hraöa aö þaö fer langt fram úr aðlögunarhæfni náttúrunnar sjálfrar. Breytingar á umhverfinu og náttúrunni eru oft geigvænlegar. Vistkerfinu er ógnaö af mengun og umhverfisbreytingum mannsins, á svo stórfelldan hátt, aö ef ekki verður staldraö viö verður skaöinn þaö mikill aö grund- vallargildi náttúrunnar glatast. Nú á tímum hefur maðurinn í velferðarríkinu ríka tilhneigingu til aö leggja einhliöa áherslu á beinan hagvöxt, efnahagslegt gildismat og hagnaðar- markmið viö mat á verðmætum lands- lagsins. Þaö er augljóst aö áönnurgildi verður aö leggja áherslu ef tryggja á varan- leg verömæti auðlindanna og þar meö taliö landslagið. Hér á íslandi hefur fólkið í landinu, bændurog sjómenn mótaö landiö í aldaraðir. Víöa blasa dæmin viö, t.d. fornir sjóvarnargarðar viö suöurströndina, gaml- ar menjar um verbúðir, gamlir hlaönir garðar um ræktuð tún (t.d. undir Ingólfsfjalli), gamlar þjóöleiðir sem víöa eru steinlagðar, leiöir sem liggja frá sveit til sjávar, aö ógleymdum fornum bæjarstæðum, þar sem ýmis grundvallaratriði tengd landslagi og náttúrufari voru höfö til hliðsjónar viö valið. Ef litið er nánar á hiö svokallaða menningarlandslag, eöa manngeröa lands- lag, þá er eftirfarandi skilgreining stund- um lögö til grundvallar: 1. náttúrugrunnlagiö, þar sem jarðfræði, jarövegsfræði, veðurfar, gróðurfar og dýraiíf eru undirstööuþættir viö staðsetningu byggöarinnar og ræktunar landsins. 2. svæðanotkun, sem er háö ræktun og ýmsum þjóðfélagslegum ákvöröunum (pólitískum). 3. byggingar og önnur mannanna verk, sem eru bæöi háð náttúrulegum forsendum og svæöisnotkuninni. Byggingarhefðir hafa gegnum tíöina ráöið miklu þar um. 4.. Gerö landslagsins (stærö, rými) hefur talsverð áhrif. Hæöadrög, þröngir, víðir dalir, flatlendi. Hreppa- og sýslumörk ganga oft þvert á eðlileg skipti í landslaginu, þó oft (frá fornu fari) fylgi þau hæðahryggjum, fjallsbrúnum , lækjum o.þ.h. íslenskt lands- lag er á margan hátt mjög sérstakt. Landið er jarðfræðilega mjög ungt og áhrif veðurs og gróöurs hafa mótaö búsetuna í gegnum aidirnar. Menningarlandslagið er þaö lands lag sem maðurinn hefur mótaö í gegnum aldirnar. Samkvæmt því getum við horft á ofbeitt landsvæði, framræstar mýrar og sagt að það sé okkar menningarlandslag. Tilvera fólksins byggðist á því aö lifa 18 af landinu. Jafnvel síöasta hríslan var rifin upp til aö hægt væri að halda á sér hita og þykir það engum mikið. Okkar land og landslag er auðlind og það á undir högg aö sækja. Fjöll eru holuö innan, ár færöar til, votlendi þurrkaö upp og mannvirki byggö jafnt ofan sem neöan jaröar. í dag er það hins vegar ábyrgðarhluti að fara illa meö landið, þess er ekk i þörf vegna fátæktar né kunnáttuleysis.Það er því alveg ótrúlegt þegar litiö er yfir sveitir lands- ins, jafnt þéttbýli sem strjálbýli, aö til sé urmull af „vel menntuöu” fólki á sviöi tækni, verkfræöi - og skipulags. Hvar er allt þetta fólk, og hvað er þaö aö gera? Þaö er undantekning ef hægt er aö finna staöi þar sem skipulag og verkþekking hefur haft elsku og þekkingu á náttúrufarinu og landinu aö leiöarljósi. Þetta blasir alls staðar viö. Jafnvel hinir harðvítugustu skógræktar- og landgræöslumenn gleyma því að til er íslenskt landslag, ákveöiö gróöurfar og ýmsar menningarminjar sem auöga okkar landslag. íslenskt landslag er á margan hátt mjög sérstakt. Landiö er jarðfræðilega mjög ungt og áhrif veðurs og gróöurs eru ríkjandi.í augum alheimsins er hér allt hreint og tært og hér býr hraust, vel menntað fólk. En síðustu áratugi hefur verið farið verr með þetta landslag en í margar aldir þar á und- an, þó svo æ ofan í æ sé talað um ofbeit og landníðingu liöinna kynslóða. Tæknin er hættuleg, ef hún tekur völdin, þó er skammtímagróðinn enn verri! Þaö er áríöandi aö allir þeir sem á einhvern hátt fjalla um og vinna aö skipulagi og breytingum á landi hafi þá viröingu til aö bera og ást á landinu aö þeir láti það stjórna gjöröum sínum. íslenskt landslag er auölind sem hægt er aö nýta en líka gjöreyðileggja. - Við getum valið! ■ Um landgræðslu og skógrækt gilda sömu lögmál og vlð önnur mannanna verk. Þar er verið að breyta náttúrunni sjálfri og landslaginu . Hér hefur friöun lands skilaö góðum árangri. 19

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.