Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Side 86
Skipulagsuppdráttur.
þess.Gott dæmi um slíkt eru hraðbrautirnar í Sviss, en þar er
landslagið eitt lag og hraðbrautirnar annað. Þessi lög vinna „óháð”
hvort öðru. Vegurinn sker sig í gegnum fjöll eða svífur yfir dali og
þetta mannlega inngrip er sérlega áhrifamikið og gefur landslaginu
mælikvarða um leið og það undirstrikar yfirborð þess.
í tillögu sem Batteríið gerði ásamt Þráni Haukssyni og Jóni Otta
Sigurðssyni í samkeppni um skipulag Geldinganes var unnið með
lag skjólbelta sem gróður. í svo stóru skipulagi er nauðsynlegt að
taka sérstakt tillit til skjólmyndunar íjaðri hverfa. Þar var hugmyndin
að hefjast strax handa við að planta skjólbeltum sem að megin-
uppbyggingu væru úr sígrænum trjám. Þegar farið væri að byggja
nesið, væri gróðurinn farinn að hafa veruleg áhrif á veðurfar. í
Setbergshlíðinni fær hluti bygginganna það hlutverk að mynda skjól.
HUGMYND SETBERGSHLÍÐAR
Lag hæðarlína: Þar sem landhalli er afgerandi þáttur í Setbergs-
hlíð, myndar hann sjálfkrafa lag hæðarlína, sem eru
landslagsforsendur með sérlega góðri afstöðu gagnvart útsýni og
sól. Inn í þetta lag falla skipulagsþættir, sem er best þjónað með að
fylgja hæðarlínum, fyrst og fremst húsagötur, með legu samsíða
hæðarlínum.
LAG LÍNA OG FLATA
Bogalínan er skjólveggurinn sem grípur utan um svæðið. Hún
er tveggja til þriggja hæða sambýlishús sem marka nyrðri og eystri
jaðar svæðisins. Byggingarnar veita skjól gegn norðlægum og aust-
lægum vindáttum. Heildaryfirbragð þeirra inn að svæðinu fær opið
og vingjarnlegt viðmót, sem verður tryggt með samræmdri
arkitektónískri meðhöndlun.
Bein lína, göngustígurinn eða trappan, tengir efra og neðra
svæði saman. Línurnar marka innra samhengi byggðar.
Fletirnireru leiksvæði af fyrirfram ákveðinni stærð, þarsemgera
þarf sérstakt inngrip í hæðarlínurnar.
84
LAG BYGGÐAR
Net er lagt yfir svæðið og fellur stefna netsins saman við
Hlíðarberg, safnbrautina neðan svæðisins sem er samsíða
hæðarlínum. Netið er lag jafnhárrar íbúðarbyggðar, lagt yfir
hæðarlínurnar og skorið úr því eftir þörfum.
Húshæðum er haldið niðri til þess að áhrif skuggamyndunar
verði sem minnst og að allar íbúðir njóti hins fagra útsýnis.
Lag byggðar og lag lína og flata marka mannlegt inngrip í land-
slagið, andstaða sem undirstrikar yfirborð þess.
SKIPULAGIÐ
Svæðið er einstætt hvað varðar útsýni og legu gagnvart sólu.
Meginhugmynd deiliskipulagsins tekur mið af því að nýta þessi gæði
á sem bestan hátt. íbúðarbyggðin leggur sig í hlíðina í skjóli
bogaveggsins. Grænt svæði teygir sig inn í byggðina frá suðri og
markar eðlileg skil á svæðinu - neðri byggð með stallahúsum og efri
byggð með einbýlishúsum. Bogaveggurinn og aðalgöngustígurinn,
trappan, tengja byggðirnar saman.
ÍBÚÐARHVERFIÐ
Umferð og aðkoma: Aðkoma að neðri byggðinni, sem telur 35
íbúðir, er um 2 götur sem liggja samsíða safngötum. Bílum er lagt
framan við bílageymslur. Bílgeymslurnar eru á neðstu hæð í stalla-
húsunum, og í raðhúsum, neðsta hluta bogaveggsins.
Aðkoma að efri byggðinni er úr norðri um Klukkuberg, sem
heldur áfram í gegnum bogavegginn, inn á svæðið. Bílum er lagt
beggja vegna götunnar, ýmist á sjálfstæð stæði eða framan við
bílskúra. í efri byggð eru 68 íbúðir.
BYGGÐIN
í hverfinu verður mjög blönduð byggð, þ.e. 9 einbýlishús, 6
raðhús, 32 íbúðir í stallahúsum og 56 íbúðir í fjölbýli.