Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Qupperneq 53

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Qupperneq 53
Kortiö sýnir leiö sem J. Vincent Harrington hefur lagt til aö farið yröi meö jarögöng undir sjávarbotni. Göngin yröu lofttæmd og um þau færu iestir sem svifu á segulpúðum. Hraði yrði yfir 1000 km/klst. Sjávardýpið er hvergi yfir 1000 metra, en 1 faðmur er 6 fet eöa 183 cm. Þau stóru vandamál sem þarf aö takast á viö eru umhverfismál. Gróðureyðing er gífurlegt vandamál um allan heim, hvort sem er í grennd viö eyðimerkur sem fara stækkandi eöa í regnskógum hitabeltisins. Að vísu er ekki hægt aö fá neina „instant”- skóga en á löngum tíma má snúa vörn í sókn á eyðimerkursvæðum jarðar - a.m.k. eru tæknilegar forsendur allar fyrir hendi þegar í dag. Pólitísk forsenda fyrir slíku er stöðugleiki, sem því miður verður ekki sagt um þau svæði þar sem helst þarf að snúa við þróuninni í gróðurmálefnum. Það væri þá helst að sýna hvað hægt er að gera með stórvirki í þessum efnum á auðnum Ástralíu - hver veit nema það gefi af sér ágóða! Orkumál jarðarinnar verður að leysa á næstu árum og áratugum. Þetta var öllum Ijóst 1973 þegar fyrsta olíukreppan skall á. Enn á ný hafa arabar minnt okkur á hve framboð á olíu í heiminum er sveiflukennt ekki síður en verðið. Jafnvel aðvaranir sérfræðinga um að hratt gangi á birgðirnar og um mikla mengun með súru regni og öðrum vondum afleiðingum við áframhal- dandi notkun eldsneytis af lífrænum up- pruna virðast engin áhrif hafa. Það þarf stríðsástand við Persaflóa til að vér hóglífir vesturlandabúar vöknum af draumnum. Ekki vantar hugmyndir um hvernig megi leysa orkuvandann í heiminum. Ég nefni eitt dæmi sem er okkur nærri. Nota má raforku úr vatnsföllum til að rafgreina vatn í vetni sem síðan mætti nota sem eldsneyti á vélar. Þessi hugmynd hefur verið nokkuð til umræðu hér á landi upp á síðkastið. Hér á íslandi höfum við mjög mikla óvirkjaða orku sem nota mætti til framleiðslu á vetni. í samvinnu við erlenda aðila má koma hér af stað tilraunavinnslu sem jafnast gæti á við álver að orkunotkun og þessi framleiðsla á eldsneyti býður ekki upp á neina mengunarhættu. Til að missa ekki af lestinni vegna biðarinnar eftir „álvers-godot” þurfum við að taka ákvörðun um að vera með svo til á stundinni. Það að vera á frontinum á þessu sviði gefur ýmsa möguleika á að taka þátt í þróun tækja og véla sem nýta „hina nýju hreinu orku”. Og þegar fram í sækir og þörf verður fyrir orku handa heilu heimshlutunum þá er skammt að líta til granna okkar á Grænlandi en þar er næga orku að hafa, svo mikla að jafnvel okkur íslendinga sundlar. Svisslendingurinn og jarðfræðingurinn Hans Stauber kannaði á árunum 1948-69 ísmyndun og bráðnun jökla á Suður- Grænlandi. Hugmynd hans var að á Grænlandi mætti nýta bráðnun jökla með svipuðum hætti og í dölum Alpafjallanna. Niðurstaða Staubers er að fá megi um 2000 milljarða kílówattstunda á ári raf- magns (2000 Twst) sem er 400-500 föld raforkuframleiðsla á íslandi nú. Með fylgir á mynd hugmynd Staubers um „jöklaorku” á Suður-Grænlandi. ÖNNUR VERKEFNI Mörg önnur stórvirki eru til athugunar á teikniborðum hugumstórra verkfræðinga. Og margar hugmyndir liggja í salti og bíða eftir betri tíð. Ef tekinn er fyrir eingöngu samgöngugeirinn þá eru fjöldamörg stórverkefni sem þarf að inna af hendi. Það þarf að skipta algjörlega um orkugjafa til samgangna. Það þarf að fækka slysum af samgöngum um fast að 100% til að viðunandi megi teljast. Og síðast en ekki síst þarf að draga margfaldlega úr áhrif- um samgangna á umhverfið, bæði hvað varðar efnamengun og hávaða. Fjöldinn allur af hugmyndum á mörgum sviðum hafa komið fram og eru sumar harla ólíklegar. Margar fjalla um geimferðir og geimstöðvar og reyndar eru flestar tengdar samgöngum á einn eða annan hátt. Til gamans er hér mynd er sýnir hugmynd um járnbraut í jarðgöngum undir Atlantshafið milli Evrópu og Norður- Ameríku um ísland og Grænland. LOKAORÐ Það er von mín með þessari grein að kynna nokkur stórvirki í fortíð, nútíð og framtíð og að reyna að vekja nokkra samúð með slíkum verkefnum, samúð sem hefur verið djúpt á meðal fólks síðustu áratugi. Það er og von mín að við íslendingar sitjum ekki hjá, heldur tökum fullan þátt í að vinna þau verk sem nauðsynleg eru og að þau geti orðið okkur og öðrum til hagsbóta. Verra væri ef við héldum uppi sömu sjónarmiðum og við lýði hafa verið heldur en taka fullan þátt í samfélagi þjóðanna með aukinni samvinnu við aðra. ■ 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.