Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Side 73
Jón Gunnar Árnason, AÐ GERA SÓLINA BJARTARI, 1974.
Hreinn Friöfinnsson: HLIÐ FYRIR SUNNANVINDINN, 1970.
borgarlandslagiö. Teiknaöi hann „15 umbreytt götuskilti", sem koma
átti fyrir í Reykjavík. Lýsir hann skiltunum á eftirfarandi hátt: „Skiltin
vísa á fjarlæga staði í tíma og rúmi, t.d. skilti með mynd af
himinhvolfinu, með upplýsingum um trúarlíf Babýlóníumanna, sól,
tungl, stjörnuguðir. Skilti í umferðargötu með mynd af lóu í heiði, skiltið
gefur frá sér hljóðið dí díí dirrin dí. Skilti sem benda á hænsnakofa í
Dölum, með portretmyndum af hænunum sex og gaggi þeirra á
segulbandi."
HÚS FYRIR ALLAN HEIMINN
Tilvísunin í „hænsnakofann í Dölum" er sennilega skeyti til
Dalamannsins Hreins Friðfinnssonar, vinar Þórðar Ben og mesta
Ijóðskálds SÚM-myndlistarmanna. Árið 1970 gerði Hreinn „hlið fyrir
sunnanvindinn" einhvers staðar úti á berangri. Sneri hliðið þannig að
sunnanvindurinn einn megnaði að opna það. Fylgdi hann eftir
þessum óði til vindsins með húsi sem innihélt allan heiminn, hvorki
^eira né minna. í bók Þórbergs Þórðarsonar, íslenskur aðall, segirfrá
Sóloni Guðmundssyni, gömlum manni sem átti þá ósk heitasta að
byggja sér ranghverft hús, það er, þar sem útveggir sneru inn - og
öfugt. Árið 1974 tók Hreinn sig til og byggði slíkt hús í hraunbolla,
fjarri mannabyggðum. Um framkvæmdina segir hann: „(Húsið) er
staðsett lengst úti í óbyggðum íslands, þar sem engin önnur ummerki
um manninn er að finna. Húsið felur það í sér að allt sem „úti" er
skreppur saman og rúmast innan fjögurra veggja. Allt sem eftir er, er
„inni". Húsið rúmar því veröldina alla, nema sjálft sig." Umhverfisverk
Jóns Gunnars Árnasonar, „Að gera sólina bjartari", er að vísu ekki
eins áþreifanlegt, en þó ámóta stórbrotið. Listamaðurinn fylgdi því úr
hlaði með eftirfarandi formála: „Sumsstaðar á íslandi nýtur ekki sólar
langan tíma ár hvert. Þetta vakti með mér hugmynd um að gera sólina
bjartari. Um vorið 1974 gerði ég umhverfisverk í Flatey á Breiðafirði,
ég kom fyrir fjórum speglum sem sneru mót höfuðáttunum. Þegar
sólin skín I speglana endurkastast geislar hennar til baka og hún
verður bjartari. "Yngri listamenn hafa ekki gefið umhverfislistina alveg
upp á bátinn. En hversu mikil um sig og áþreifanleg sem verk þeirra
eru, eru þau samt ekki eins mikilfengleg í sér og hugsmíðar
frumherjanna í SÚM-hreyfingunni. ■
71