Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Side 62

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Side 62
A teikniborðinu HVERFISGATA 20 - BÍLASTÆÐAHÚS * Fyrirhugað er að reisa bíiastæðahús á lóðinni nr. 20 við Hverfisgötu. Reiturinn afmarkast við Smiðjusttíg að austan en við Traðarkotssund að vestan. Bílastæðahúsinu er einkum ætlað að þjóna atvinnustarfsemi í næsta nágrenni í miðbænum. Hluti stæðanna er ætlaðurtil skammtímanotkunar, en einnig verða leigð út stæði til lengri tíma. Aðkoma bíla er frá Hverfisgötu. Fyrirhugaðar eru beygjureinar að innkeyrslu frá austri og vestri þegar skipulagi Hverfisgötu hefur verið breytt. Fjöldi bílastæða er áætlaður 271, þar af eru 115 stæði neðanjarðar. Ofanjarðar eru fjórar hæðir, en tvær nokkru stærri hæðir neðanjarðar. Verulegur hluti hússins er þannig neðanjarðar. Á fyrstu hæð og á litlum hluta annarrar hæðar er auk bílastæða húsnæði fyrir verslanir, annarsvegar á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs og hinsvegar á horni Hverfisgötu og Traðarkotssunds. Áætlað er að byggingin verði samtals um 8500 m2, þar af er húsnæði fyrir verslanir áætlað um 425 m2. Byggingunni er skipt að endilöngu, meðvegg ímiðju. Hálfrar hæðar munur er milli húshluta sem tengdir eru saman með skábrautum. Einstefna er í húsinu og eru skábrautir valdar eftir því hvort viðkomandi er á upp- eða niðurleið. Húsið er byggt úr steinsteypu. Gólfplötur eru samsettar úr ein- ingum með ásteypulagi. Aðrir byggingarhlutar úr steini eru staðsteyptir. Útveggir verða steyptir í kerfismótum. Miðað er við sjónsteypu. Veggfletir verða málaðir að utan. Yfir fjórðu hæð er „létt“ þak sem hvílir á steyptum súlum. Þakið 60

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.