Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 77

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 77
BÓKARKYNNING UPPRUNINN Skáldsaga um arkitekt ÞÓR SIGFÚSSON Um næstu jól kemur út bók eftir bandarísk-rússnesku skáldkonunaAyn Randsemheitiráfrummálinu„TheFountainhead.“ Bókin kom fyrst út í Bandaríkjunum áriö 1946 og hefur hún selst í milljónum eintaka. Bókin nefnist á íslensku „Uppruninn." “Saga þessi segir frá arkitektinum Howard Roark sem virðir að vettugi hefðir í byggingarlist og er utangarðsmaður í grein sinni sökum þess. „Uppruninn" er saga um baráttu tveggja andstæðra lífsskoðana; hóphyggju og einstaklingshyggju. Howard Roark er fulltrúi einstaklingshyggjunnar. Hann er arkitekt og sköpunarverk hans eru fullkomin, rökrétt og búa yfir fegurð sem gengur þvert á allar hefðir. Hann á sér þá einu þrá að byggja og með hana að vopni berst hann gegn öllum heiminum og hefur sigur að lokum. Andstæða Roarks, menntamaðurinn Ellsworth Toohey, er fulltrúi hóphyggjunnar og opinberar hennar innstaeðli; einstaklingur- inn verður að gleyma sjálfum sér, hætta að vera til og renna saman við heildina, beina öllum sínum kröftum að velferð hennar. Mitt á milli þeirra stendur Peter Keating, skólabróðir Roarks. Hann hefur fengið allt upp í hendurnar og er ákveðinn í að reyna að notfæra sér aðstöðu sína og þá sem á vegi hans verða, til þess að bæta eigin hag. Líf hans hefur ekki tilgang, hann er aðeins bergmál annars fólks og án þess er hann hjálparvana. Það sem er einna markverðast við bók þessa og ástæða þess að hún er nú gefin út er að hún á líklega einkar vel við íslenskar aðstæður. Höfundurinn nær að útlista kunningjaþjóðfélagið á þann hátt að fáir hafa leikið það eftir. Howard Roark þrífst í samfélagi þar sem mest er um vert fyrir arkitektinn að stunda teboðin, afla sér vinsælda í samkvæmislífinu og hafa sjálfskipaða dómara byggingarlistarinnar í fjölmiðlum og annars staðar á sínu bandi. íslenska kunningjaþjóðfélagið byggist á svipuðu lífsmynstri. Meira er um vert að þekkja rétta fólkið en að geta! í þessu andrúmslofti verður arkitektinn aðeins undirmálsmaður, hlekkjaður í vanann; aðeins bergmál annarra. Ayn Rand vartalin hafa, að einhverju leyti, Frank Lloyd Wright sem fyrirmynd að aðalpersónu bókarinnar, Howard Roark. Ayn Rand viðurkenndi það aldrei meðan hún lifði, en í einni af ævisögum Wrights er sagt frá því að hann hafi lesið bókina og hafi Rand og Wright rætt saman um efni hennar. Sagt er að Wright hafi líkað bókin vel. í ýmsu fellur sagan að sögu Frank Lloyd Wrights. Bæði sögupersónan og Wright eru byltingarmenn, bæði í sögunni og í lífi Wrights er að finna dæmi þar sem báðir hafa í hótunum um að eyðileggja hús, sem þeir höfðu teiknað, vegna þess að verktakar breyttu teikningum þeirra. Markmið Ayn Rand með skrifum sínum var ávallt það að sýna fram á að í hverjum manni byggi hans eigin markmið og að skylda hans væri að framfylgja þeim. „Uppruninn" er án efa einn besti fulltrúi höfundar síns. Frásögnin er leiftrandi af lífi og hlaðin spennu. Þetta er bók sem auðvelt er að opna og erfitt að leggja frá sér. ■ unoform Innréttingahúsiö hf Háteigsvegi 3, 105 Reykjavík Sími 91-627474 Símbréf 91-627737 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.