Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Side 90
Stóll, smíðaður úr
MDF, lakkaður.
Gerður í London
College of Furniture
1983.
fe i
Verkefni í Gerrit
Retveld Academle
1988. Hugmynd að
stól. Form tekin af
verkfærum, sigð,
jórn og
pappamassi.
Borðplata, innlögð
úr eik, rótarspæni
og palesander.
flestra og niðurstaöan verður að þau verða kei lík.
Samband iðnhönnuða og framleiðsluiðnaðarins hefur ára-
tugum saman verið í stíl við stöðu leikara í Hollívúdd. Margir reyna-,
nokkrir fá tækifæri og örfáir verða að stjörnum. Þetta samband er
nú að breytast, bæði vegna breyttra viðhorfa og fjölhæfari
framleiðslutækni.
Á fáum sviðum eru breytingarnar meira áberandi en í hús-
gagnagerð. í stórborgum heimsins eru opnaðar verslanir sem selja
sérsmíðuð húsgögn og oft eru það hönnuðirnir sjálfir sem reka
verslanirnar. í vissum tilfellum reka þeir líka sín eigin verkstæði þar
sem hönnun og framleiðsla renna saman í eitt. Breskir hönnuðir
hafa t.d. lagt mikið upp úr því að enduruppgötva efniseiginleika og
áferð, þeir hafa notað algeng efni eins og lítið unnið timbur, jafnvel
steinsteypu og steypustyrktarjárn. í öðrum löndum, t.d. Þýskalandi
og Hollandi hafa menn búið til konsepthúsgögn, t.d. stóla fyrir
kaþólikka, framámenn í sovéska kommúnistaflokknum eða
afgreiðslufólk í kjörbúð. í Barcelóna blómstrar vönduð húsgagna-
gerð sem sameinar leik og afbragðs handverk. Það segir ef til vill
sína sögu að allþekktur hönnuður bindur efnisnotkun sína við
afskrifaða hluti og afurðir neysluþjóðfélagsins. Spennuvíddin í
þessari flóru er með ólíkindum, allt frá fínlegum hátæknihúsgögnum
til groddalegasamsetts úrgangs. Samnefnari umrótsinsersköpunar-
gleði og fagþekking. Það verður að viðurkennast að slík húsgögn eru
ekki allra, en þeim fer fjölgandi sem vanda valið. Þeir velja fáa hluti og
verjast þar með offlæðinu með því að búa umhverfi sitt sál og inntaki.
Sigrún Kristjánsdóttir hefur menntað sig í húsgagnagerð og fyrir
stuttu mátti sjá verk hennar á sýningu í Epal, á samsýningu hennar og
Halldóru Emilsdóttur en þar sýndi hún borð og skilveggi.
Verk hennar bera þess greinilega merki að hún hefur náð tökum
á handverkinu. Eftir stúdentspróf fór hún í Iðnskólann og lærði
húsgagnasmíði og fékk þar góða fagþjálfun. Lærði tækniteiknun, að
vinna með mismunandi efni, leikreglur samsetninga og
yfirborðsmeðhöndlunar aukgrundvallaratriðaverksmiðjuframleiðslu.
Síðan fór hún til Englands að læra hönnun í London College of
Furniture. Það er einkenni á flestum enskum skólum að áhersla er
lögð á hagnýtt nám. Notagildið er í fyrirrúmi, nemendur eru þjálfaðir
í tæknilegum lausnum skilgreindra verkefna þar sem markaðstengsl
og hagkvæmni eru leiðarljósið. Aftur á móti er lítið svigrúm fyrir djarfa
sköpun í fagskólunum þar. Hana er fremur að finna í listaskólunum
sem löngum hafa verið frjósamur jarðvegur nýsköpunar.
88