Fréttablaðið - 29.03.2023, Síða 13

Fréttablaðið - 29.03.2023, Síða 13
K Y N N I NG A R B L A Ð ALLT MIÐVIKUDAGUR 29. mars 2023 Æfði fimleika í fjósinu og á túnunum í sveitinni heima Guðmundur Kári Þorgrímsson ólst upp í sveit rétt hjá Búðardal þar sem ekki var mikið úrval af íþróttum til að æfa. Hann komst samt í landsliðið í fimleikum og á verðlaunapall á EM. Nú er hann fluttur aftur í sveitina, starfar við kennslu og þjálfar börn í fimleikum. 2 Guðmundur Kári Þorgrímsson hefur í nógu að snúast. Hann passar að skipuleggja sig vel til að komast yfir verkefni dagsins og gefur sér alltaf tíma fyrir æfingar. MYNDIR/AÐSENDAR Of mikil saltneysla er ekki góð fyrir heilsuna. fRéttAblAÐIÐ/GEttY gummih@frettabladid.is Íslendingar neyta meira salts en mælt er með, en margir vita ekki af því. Mest af saltinu er dulið í tilbúnum matvörum. Það er mikill ávinningur heilsufarslega af að minnka saltneyslu því þannig má draga úr hækkun blóðþrýstings en háþrýstingur er einn af áhættu- þáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Áhrif þess að draga úr salt- neyslu eru mest hjá þeim sem eru með ofan háan blóðþrýsting og hjá þeim sem eru yfir kjörþyngd en einnig má vinna gegn þeirri blóðþrýstingshækkun sem yfirleitt fylgir hækkandi aldri. Skoða saltið í matvörum Samkvæmt ráðleggingum um mataræði er mælt með að full- orðnir neyti ekki meira en sem nemur sex grömmum af salti á dag og fyrir börn 2–9 ára ætti salt- neysla að vera takmörkuð við 3–4 grömm á dag. Stærstur hluti salts í fæðu, eða um þrír fjórðu, kemur úr tilbúnum matvælum, svo sem unnum kjötvörum, brauði, ostum, pakkasúpum, sósum, tilbúnum réttum og skyndibitum. Ráðlagt er að lesa utan á umbúðir matvæla og velja sem oftast saltminni kostinn. Embætti landlæknis hvetur neytendur til að skoða saltið í matvörum og finna leiðir til að minnka saltneysluna. Framleiðendur eru einnig hvattir til að minnka smátt og smátt salt- innihald í matvörum sínum. n Drögum úr saltneyslunni Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.