Fréttablaðið - 29.03.2023, Side 18
Gróa Björg hjá Terra
umhverfisþjónustu segir
að gagnsæi og upplýsinga-
gjöf fyrirtækisins um farveg
úrgangs stuðli að bættri
endurnýtingu og heilbrigð-
ara hringrásarhagkerfi.
Terra umhverfisþjónusta veitir víð-
tæka þjónustu við söfnun úrgangs,
f lokkun og að koma efnum í réttan
farveg. „Við hjálpum fyrirtækjum
og sveitarfélögum að ná árangri í
umhverfisvænni úrgangsstjórnun
til að koma sem mestu aftur inn í
hringrásarhagkerfið,“ segir Gróa
Björg Baldvinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri sjálfbærrar menn-
ingar og stjórnarhátta hjá Terra.
Sjálfsskoðun, ábyrgð og traust
Síðustu ár hafa ýmsar breytingar
orðið á rekstri Terra umhverfis-
þjónustu. „Á síðasta ári var kom-
inn tími til að líta í spegil, meta
stöðuna og setja markmið fyrir
framtíðina. Við fórum í allsherjar
sjálfsskoðun og mótuðum stefnu
til að skerpa á framtíðarsýn okkar.
Samhliða tókum við stöðuna á
sjálfbærnimálum enda er mikil-
vægt að innleiðing sjálfbærni sé
samofin kjarnarekstri fyrirtækja,
ætli þau að þrífast og mæta kröfum
nútíðar og þörfum framtíðar.
Við fórum meðal annars í
mikilvægisgreiningu, sem ég hvet
önnur fyrirtæki eindregið til að
gera. Hún snerist um að greina
hvað við ættum að leggja áherslu
á í okkar rekstri þegar kemur að
umhverfisþáttum, félagslegum- og
stjórnarháttum. Við fórum í þessa
vinnu með ráðgjöfum, áttum
nokkrar vinnustofur með starfs-
fólki og sendum út spurningalista
til viðskiptavina okkar, starfsfólks,
birgja, samstarfsaðila og hluthafa.
Einnig gat almenningur tekið þátt.
Niðurstöðurnar hjálpuðu okkur
að forgangsraða áherslum okkar
og markmiðum í sjálfbærni út frá
rekstrinum. Það er margt til fyrir-
myndar en við höfum líka rekið
okkur á hluti í rekstrinum sem
mættu vera í betri farvegi. Þá er lag
að skoða þau mál, taka ábyrgð, for-
gangsraða og gera betur.“
Gagnsæi eykur traust
„Fólk vill vita hvar efnin enda sem
verið er að flokka, og hluti af okkar
markmiðum tengdum sjálfbærni
er að auka gagnsæi í því. Það felst
meðal annars í útgáfu á sjálfbærni-
skýrslu og aukinni upplýsingagjöf
um rekstur Terra á vefsíðu okkar.
Þannig viljum við meðal annars
auka tiltrú og traust almennings á
okkur og þessum atvinnugeira.
Við fáum oft spurningar um
hvar þetta endar allt, sem við
flokkum dag hvern. Þessar
spurningar eru skiljanlegar enda
hafa komið upp mál þar sem plast
endaði til dæmis ekki á réttum
stað. Þannig tilfelli hafa áhrif á
tiltrú fólks á því að úrgangurinn fái
rétta meðhöndlun. Við hjá Terra
umhverfisþjónustu tökum þetta
alvarlega og viljum gera betur. Rétt
flokkun skiptir gríðarlegu máli
og getur haft mikil áhrif á endur-
vinnslustuðul úrgangs. Efni sem
ekki er flokkað rétt getur smitað út
frá sér og jafnvel skemmt efni sem
hefði annars mátt endurvinna.
Röng flokkun getur einnig kostað
starfsfólk okkar mikinn tíma í að
hreinsa efnin frá svo hægt sé að
senda efnið í endurvinnslu.
Ef samfélagið treystir því að
efnin fari í réttan farveg, umhverf-
inu og loftslagsmálum til góða,
stuðlar það vonandi að réttri
f lokkun. Þannig ættum við saman
að ná enn meiri árangri í úrgangs-
málum og í kjölfarið auka verulega
endurnýtingu og endurvinnslu-
hlutfall þess úrgangs sem fer í gegn
hjá okkur.
Til þess að stuðla að auknu
gegnsæi og trausti almennings
höfum við birt yfirlit á vefsíðu
okkar terra.is/is/urgangsmed-
hondlun, þar sem sjá má hvernig
úrgangsefni flæða í gegn hjá okkur.
Þar sést hvað er endurunnið, hver
aukaafurðin er, hvað er endurnýtt,
urðað og annað slíkt,“ segir Gróa.
Stuðlum að sjálfbærni
Markmið nýliðinnar stefnumótun-
ar Terra, Stuðlum að sjálfbærni, er
að stuðla að sjálfbærni samfélags-
ins og styðja viðskiptavini við
að ná því markmiði. „Sjálfbærni
verður að vera samofin viðskipta-
módeli hvers fyrirtækis svo að
félag sé rekið með langtímastefnu
og sjálfbærni í huga. Það þýðir ekki
lengur að horfa eingöngu í krónur
og aura, því umhverfis-, félagslegu
og stjórnarhættirnir eru hluti af
jöfnunni.
Við hjá Terra höfum metnað
fyrir því að skilja ekkert eftir.
Þar spilar hringrásarhugsunin
lykilhlutverk í virðiskeðjunni.
Krafan eykst sífellt um að fyrirtæki
upplýsi um sjálfbærnimál sín og
við innleiðingu á sjálfbærni þarf
meðal annars að huga að úrgangs-
málum. Hluti af nýrri sýn okkar er
aukin sjálfvirkni og að veita við-
skiptavinum enn betri upplýsingar
um sín úrgangsmál og styðja þann-
ig við sjálfbærnibókhald þeirra.
Viðskiptavinir Terra geta fylgst
þar með magni úrgangs, f lokk-
Sjálfsskoðun
í átt að sjálfbærni
unarhlutfalli sínu og fleiru inni á
„mínum síðum“. Þannig viljum við
mæta þörfum viðskiptavina.“
Stórar breytingar fram undan
Um síðustu áramót tóku gildi
ný lög um stjórnun úrgangs-
mála. „Markmiðið er að draga
úr myndun úrgangs og stuðla að
myndun hringrásarhagkerfis. Eitt
af lykilatriðum þess er að hugsa
um úrganginn okkar sem hráefni
sem megi endurvinna aftur og
aftur. Við breytingarnar mun sama
flokkunarkerfi gilda um allt land.
Þá verður skylt að flokka úrgang
við heimili í fjóra flokka og við
fyrirtæki í sjö.
Með samræmdri merkingu og
aukinni fræðslu, vonumst við til að
fá mun hreinni strauma af efnum
til okkar, sem mun bæta mögu-
leika á að koma efnum aftur inn
í hringrásina. Við hvetjum öll til
þess að kynna sér þessar breyting-
ar og auðvitað að flokka rétt,“ segir
Gróa að lokum. n
Gróa Björg segir
Terra Umhverf-
isþjónustu hafa
farið í allsherjar
sjálfsskoðun
á síðasta ári
til að skerpa á
framtíðarsýn
fyrirtækisins.
Fréttablaðið/
Valli
Í sinni einföldustu mynd
þá gefa upprunaábyrgðir
raforku okkur staðfestingu
á hvar og með hvaða hætti
ein megavattstund (MWst)
af endurnýjanlegri raforku
er unnin.
„Hugsa má afurð endurnýjanlegra
orkugjafa sem tvær aðskildar
vörur. Annars vegar er það sú
raforka sem framleidd er og hins
vegar þær upprunaábyrgðir sem
verða til við framleiðsluna. Með
kaupum á upprunaábyrgðum fá
raforkunotendur staðfestingu á
því að það rafmagn sem þeir nota
er framleitt með 100% endur-
nýjanlegum orkugjöfum,“ segir
Halla Marinósdóttir, öryggis-,
umhverfis- og gæðastjóri hjá
Orkusölunni.
Staða Íslands
Ísland nýtur þeirra forréttinda að
búa yfir auðlindum endurnýjan-
legra orkugjafa. „Bæði vatnsafl
og jarðvarmi gefa okkur kost á að
framleiða raforku með endur-
nýjanlegum hætti og þar með
halda losun vinnslunnar í lág-
marki í samanburði við ýmsar
algengar aðferðir við framleiðslu
raforku víðast hvar erlendis. Það
sem eykur okkar sérstöðu enn
frekar er staðsetning Íslands í
miðju Atlantshafinu sem veldur
því að við erum í lokuðu kerfi þar
sem öll framleiðslan nýtist innan-
lands. Í þessu samhengi er skiljan-
legt að notendur telji og vilji segja
að þeirra raforkunotkun sé 100%
endurnýjanleg.
Ísland er samkvæmt lögum
hluti af evrópska orkumark-
aðnum og fylgja því ákveðnar
skyldur,“ segir Halla.
Þróun kerfisins
„Reglum var komið á með inn-
leiðingu laga nr. 30/2008 og hafa
sum íslensk orkufyrirtæki stundað
viðskipti með slíkar ábyrgðir síðan
2011. Þátttaka Íslands í kerfinu
veitir íslenskum orkufyrirtækjum
kost á að afskrá upprunaábyrgð-
irnar í tengslum við þá orku sem
afhent er notendum hér á landi
eða selja upprunaábyrgðirnar til
kaupenda á evrópska efnahags-
svæðinu. Samsetning raforku eftir
uppruna hér á Íslandi breyttist í
kjölfar þátttöku Íslands í kerfinu
og hefur hlutfall endurnýjanlegrar
raforku farið úr 89% niður í 13% á
árunum 2011-2021.
Árið 2016 tók Landsvirkjun þá
ákvörðun að láta upprunaábyrgðir
fylgja með heildsölu raforku á
smásölumarkaði og skilaði það sér
til viðskiptavina í formi uppruna-
ábyrgða. Fyrirkomulag uppruna-
ábyrgða breyttist í byrjun árs
2023 þegar Landsvirkjun ákvað
að afhenda ekki upprunaábyrgðir
með sinni heildsölu, heldur selja á
markaði. Rekja má þessar breyt-
ingar meðal annars til aukinnar
eftirspurnar og hækkandi verðs á
erlendum mörkuðum,“ segir hún.
Orkusalan
Að sögn Höllu hefur Orkusalan
hingað til ekki selt upprunaábyrgð-
ir úr landi heldur einungis afskráð
þær ábyrgðir sem verða til við eigin
framleiðslu og kaup á heildsölu-
markaði til viðskiptavina hér á
landi. „Grænt ljós Orkusölunnar
hefur veitt viðskiptavinum Orku-
sölunnar slíka staðfestingu. Það er
hlutverk Orkusölunnar að tryggja
viðskiptavinum sínum kost á því að
kaupa 100% endurnýjanlega orku.“
Áhrif notenda
Það velta því eflaust margir fyrir sér
hvort kaupa skuli upprunaábyrgðir
eða ekki. „Til þess að auðvelda
ákvarðanatöku er gott að hafa eftir-
farandi tvö atriði í huga. Annars
vegar miðlun upplýsinga í markaðs-
legum tilgangi og hins vegar áhrif
upprunaábyrgða á losunarbókhald
fyrirtækja.
Notendur sem kaupa upp-
runaábyrgðir eiga kost á og mega
markaðssetja sig sem notendur
endurnýjanlegrar orku. Fyrirtæki
sem markaðssetur sínar vörur á
þessum forsendum getur oft og
tíðum fengið þann kostnað sem
fylgir kaupum á ábyrgðum til baka í
hærra verði á þeim vörum sem það
framleiðir. Á sama tíma er mikil-
vægt að þeir aðilar sem taka með-
vitaða ákvörðun um að kaupa ekki
upprunaábyrgðir geri ekki slíkt hið
sama.
Varðandi losunarbókhald
fyrirtækja er mikill munur á los-
unarstuðli raforku eftir því hvort
upprunábyrgðir fylgja eða ekki. Í
upplýsingagjöf fyrirtækja er yfir-
leitt talað um tvenns konar losun.
Annars vegar um losun miðað við
staðsetningu og hins vegar losun
miðað við markað. Þegar gefin er
upp losun miðað við staðsetningu
hafa kaup upprunaábyrgða engin
áhrif. Eftirfarandi losunarstuðul
má nálgast hjá Umhverfisstofnun
Íslands (UST) sem gefur árlega út
meðalstuðul fyrir raforkufram-
leiðslu hér á landi.
Ef við lítum hins vegar á losun
miðað við markað þá þurfa not-
endur að gera sér grein fyrir því
hvað í henni felst. Þeir aðilar sem
kaupa ábyrgðir hafa tök á því að
nota losunarstuðulinn frá UST eða
ef þeirra raforkusala hefur reiknað
sinn eigin losunarstuðul geta þeir
notað hann.
Aðrir sem kjósa að kaupa ekki
ábyrgðir eiga að nota losunar-
stuðul sem Orkustofnun gefur út
en hann byggist á uppruna raforku
eftir orkugjöfum m.t.t. uppruna-
ábyrgðakerfisins.
Sá stuðull er mun hærri og var
427 gCO2/kwh árið 2021 saman-
borið við 10,3 gCO2/kwh frá UST.
Því eru þau sem kaupa ekki upp-
runaábyrgðir með hærri losunar-
tölur í sínu kolefnislosunarbók-
haldi en fyrirtæki sem það gera.
Við hvetjum viðskiptavini Orku-
sölunnar og aðra raforkukaup-
endur til að kynna sér uppruna-
ábyrgðakerfið og taka í kjölfarið
upplýsta ákvörðun um þátttöku
sína,“ segir Halla að lokum. n
Kaup og meðhöndlun upprunaábyrgða á raforku
Halla Marinósdóttir, öryggis-, umhverfis- og gæðastjóri hjá Orkusölunni, telur
mikilvægt að fyrirtæki og einstaklingar taki upplýsta ákvörðun um að fjár-
festa í upprunaábyrgðum raforku. Mynd/elísabet blöndal
Það er hlutverk
Orkusölunnar að
tryggja viðskiptavinum
sínum áfram kost á því
að kaupa 100% endur-
nýjanlega orku sem er
staðfest með uppruna-
ábyrgðum.
Halla Marinósdóttir
4 kynningarblað 29. mars 2023 MIÐVIKUDAGURSjálfbærni í reKStri