Fréttablaðið - 29.03.2023, Blaðsíða 23
Til þess að
fá vörur
sínar vott-
aðar þurfa
fram-
leiðendur
að fara í
gegnum
strangt
gæðaferli.
Jóna Guðrún
Berglind Ósk
Ólafdóttir og
Jóna Guðrún
Kristinsdóttir
inni í byggingu
nýrra BREEAM
höfuðstöðva
BYKO.
hlutfall endurunninna efna og líf-
tímaupplýsingar.“
Stundum er talað um „græna
byggingu“ og segir Jóna Guðrún að
með því að hafa umhverfið í huga
í allri ákvarðanatöku sé hægt að
komast ansi langt. „Þættir sem geta
haft mikil áhrif eru að byggingin
sé hönnuð þannig að hægt sé að
nýta náttúrulega dagsbirtu og loft-
ræstingu sem mest, nota eingöngu
vistvæn og endingargóð efni við
bygginguna, viðhald og þrif, tak-
marka vatns- og rafmagnsnotkun
og gæta vel að hljóðvist. Allir þessir
þættir stuðla að hagkvæmari
rekstri bygginga og aukinni arð-
semi fjárfestinga til framtíðar.“
Fagleg þekking og ráðgjöf
Jóna Guðrún er spurð hvers vegna
mikilvægt sé að hafa umhverfis-
vernd í huga þegar staðið er í fram-
kvæmdum.
„Það getur haft mjög jákvæð
áhrif á heilsu fólks að velja vistvæn
efni þegar farið er í framkvæmdir;
að efnin sem notuð eru, sérstak-
lega á heimilum, séu ekki að
losa eiturefni hægt og rólega yfir
líftímann og valda fólki skaða.
Rannsóknir Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar sýna að fólk
ver um 90% ævinnar innandyra og
að hægt sé að koma í veg fyrir tæp
13% dauðsfalla með bættri innivist
svo það er til mikils að vinna með
vali á efnum til bygginga.“
Starfsfólk BYKO veitir viðskipta-
vinum ráðgjöf sem snýr sérstak-
lega að vistvottunarkerfum og
vistvænu vöruframboði. Jóna
Guðrún segir að einnig hafi verið
settur saman faglegur hópur
innanhúss þar sem koma að borð-
inu sérfræðingar á hverju sviði
og halda kynningar, bæði fyrir
arkitekta og hönnuði en einnig
fyrir verktaka og iðnaðarmenn.
„Við förum á þessum kynningum
yfir sjálfbærnivegferð okkar, vist-
vottunarkerfin og vörurnar ásamt
því að svara spurningum. Þetta
hjálpar okkur einnig að finna hvar
við getum gert betur og sjá hvaða
þróun á sér stað á markaðnum.
Við höfum einnig boðið viðskipta-
vinum okkar að við komum að
borðinu snemma í hönnunar- og
byggingaferlinu sem ráðgefandi,
varðandi vörur og lausnir. Það sem
við þurfum að bæta er að sinna
betur ráðgjöf og fræðslu til ein-
staklinga og við gerum okkur grein
fyrir því og erum farin að huga að
því.“
Þegar fólk er að taka fyrstu
skrefin í framkvæmdum og langar
til að gera það á umhverfisvænan
hátt segir Jóna Guðrún að mikil-
vægt sé að fólk kynni sér umhverf-
ismerkin til að vita fyrir hvað þau
standa. „Það er ekki nóg að sjá að
varan hafi einhvern stimpil eða
merki og taka það sem gefið að
merkingin tákni að varan sé vist-
væn. Þvert á móti gæti það táknað
að viðkomandi framleiðandi
styrki ákveðið málefni með sölu-
andvirði vörunnar. Við þurfum
að vera gagnrýnin og upplýst og
þar kemur einmitt fræðsluþáttur
aðila á markaðnum sterkur inn;
við höfum skilgreint helstu merkin
á vefnum okkar í mjög stuttu máli
og erum að vinna í ítarlegri skil-
greiningum þar.“
Láta verkin tala
BYKO selur mikið af umhverfis-
vænum vörum og eru þónokkrir
birgjar framarlega á þessu sviði.
„Við bjóðum gott úrval af Svans-
vottaðri málningu, innréttingar
sem uppfylla viðmið vistvott-
unarkerfanna, parket með Bláa
englinum sem er þýskt gæðavið-
mið samþykkt af Svaninum, ýmiss
konar efnavöru eins og múr, kítti
og lím- og bindiefni sem leyfð eru
í vistvottaðar byggingar ásamt
hreinlætistækjum sem uppfylla
sömu viðmið auk þess að bjóða
úrval vistvænna hreinsiefna,
Við horfum ekki endilega til
þess að bjóða einungis vistvænar
vörur,“ segir Jóna Guðrún, „heldur
viljum við geta boðið vistvæna
valkosti í öllum vöruflokkum
okkar. Við viljum að viðskipta-
vinir okkar hafi val en hvetjum þá
þó eindregið til að velja vistvænt.“
Það er margt hægt að gera ef fólk
vill huga að umhverfisþættinum
þegar kemur að heimilinu. „Það
þarf alls ekki að byrja á því að
byggja sér vottað hús,“ segir Jóna
Guðrún „Það mikilvægasta er að
vera meðvitaður um umhverfis-
mál, vöruval og eigin hegðun og
muna að margt smátt gerir eitt
stórt eins og að byrja að skipta út
hreinsiefnum og málningu yfir
í Svansvottaðar vörur, f lokka
úrgang og endurnýta sem mest,
slökkva ljósin þegar þau eru ekki
í notkun, vera gagnrýnin á eigin
neyslu og kaupa ekki eitthvað sem
ekki er þörf á og þegar kemur að
viðhaldi að huga þá sérstaklega að
því að velja vistvænt. Þetta eru allt
mjög einföld skref sem skila sér í
minni losun og draga verulega úr
allri sóun.“
Jóna Guðrún segir að starfs-
fólk BYKO hafi séð mikla þróun
þegar kemur að umhverfisvitund
almennings og nefnir sérstaklega
yngri hópana sem geri auknar
kröfur um vistvænar vörur og
lausnir. „Þau vilja leggja sitt af
mörkum til að draga úr umhverf-
isáhrifum og ná jafnvægi í lofts-
lagsmálum og eru mjög meðvituð
og vel að sér í umhverfismálum.
Við bendum vissulega á vistvænni
lausnir þegar hægt er, enda er
það í takt við stefnur okkar að ná
fram auknu vægi fyrir vistvænar
lausnir.“
Jóna Guðrún segir að vistvænar
vörur séu alls ekki dýrari en aðrar
vörur. „Það getur vissulega verið í
einhverjum tilfellum en heilt yfir
þá er sambærilegt verð á þessum
vörum og öðrum. Þetta er alltaf
bara spurning um að verið sé að
bera saman epli og epli; það er
sambærilega vöru innihalds- og
gæðalega séð. Vissulega skiptir
verðlagið alltaf máli. Við viljum
öll fá sem mest fyrir peninginn
okkar en þó er það að mínu mati
þannig að fólk er farið að setja
meiri fókus á gæði og endingu svo
þetta hefur aðeins breyst. Fólk er
orðið tilbúnara að hugsa til langs
tíma og reikna kostnaðinn niður á
endingartímann.“
Hvað með gæðin þegar kemur
að vistvænum vörum miðað við
aðrar?
„Til þess að fá vörur sínar vott-
aðar þurfa framleiðendur að fara
í gegnum strangt gæðaferli þar
sem bæði framleiðandinn sjálfur,
framleiðsluferlið og varan er skoð-
uð og metin á ítarlegan hátt. Þetta
er gert til að tryggja gæði fram-
leiðslunnar og vörunnar ásamt
því að greina innihald vörunnar
og hvort hún komi til með að
losa eiturefni út í andrúmsloftið
sem geta haft skaðleg áhrif. Við
teljum því alveg tvímælalaust að
vistvænar vörur tryggi betri gæði
fyrir utan þau jákvæðu áhrif sem
vistvænar vörur geta haft á heilsu
fólks.“
Sjálfbærni er líka félagsleg
Á árinu 2021 voru lögð grunnskref
að jafnréttisvegferð félagsins þar
sem jafnlaunastefna og jafnrétt-
isáætlun félagsins voru teknar
til endurskoðunar. Áður hefur
félagið sett jafnrétti á oddinn með
því að velja heimsmarkmið um
jafnrétti sem eitt af sínum kjarna-
markmiðum.
BYKO er í samstarfi við Great
Place to Work. Samstarfið felur
í sér greiningu á BYKO sem
vinnustað, bæði menningarlega
og með vinnustaðagreiningu. Í
greiningunni er lögð áhersla á
þrjá meginlykilkvarða, traust,
vellíðan og helgun. Niðurstöður
vinnustaðagreiningarinnar veittu
BYKO viðurkenningu sem frábær
vinnustaður og á lista yfir bestu
vinnustaði á Íslandi og í Evrópu. Í
niðurstöðum kemur fram að 70%
starfsfólks ber traust til félagsins,
helgun mældist 71% og vellíðan
66%. Félagið stefnir á að ná enn
betri árangri á þeim lykilkvörðum
á árinu 2023. „Við þurfum öll
að gera betur í sjálf bærni, huga
að starfsfólkinu, rekstrinum og
bregðast við þeim áskorunum
sem heimurinn stendur frammi
fyrir. Hlýnun jarðar á sér stað
hraðar en við bjuggumst við og
einstaklingar, fyrirtæki, stjórn-
völd og aðrir hagaðilar verða að
stíga skrefin hraðar og láta verkin
tala,“ segir Jóna Guðrún. n
Nýjar höfuð-
stöðvar BYKO
munu rísa
undir merkjum
BREEAM, sem er
eitt elsta vist-
vottunarkerfi í
heimi.
kynningarblað 9MIÐVIKUDAGUR 29. mars 2023 Sjálfbærni í rekStri