Fréttablaðið - 29.03.2023, Page 32
Þórarinn Ívarsson er stofnandi og framkvæmdastjóri Veraldarvina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Veraldarvinir eru alþjóðleg
samtök sjálfboðaliða sem
hafa meðal annars unnið við
að hreinsa fjörur landsins.
gummih@frettabladid.is
Þórarinn Ívarsson er stofnandi og
aðalhvatamaðurinn að framgangi
samtakanna sem voru stofnuð fyrir
22 árum síðan. Umhverfisverkefni
Veraldarvina hafa verið fjölbreytt,
en auk hreinsunar á strandlengju
Íslands hefur trjám verið plantað
í ríkum mæli og einnig standa
samtökin fyrir fræðslu um heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbærni. Á hverju ári koma mörg
hundruð sjálfboðaliðar til starfa
fyrir Veraldavini.
Veraldavinir eru að gera stór-
merkilega hluti þegar kemur að
sjálfbærni, en samtökin eru að
byggja upp tvö sjálfbærnisetur í
húsum sem stóðu auð í fjölda ára.
Þetta er gamla símstöðin Brú í
Hrútafirði og hið merkilega ráðs-
mannshús í Krýsuvík.
„Við hófumst handa á Brú
í Hrútafirði fyrir næstum því
þremur árum síðan. Þetta er tólf til
þrettán hundruð fermetra hús sem
er í eigu Festis. Þetta var símstöð á
árum áður og miðstöð samskipta á
Íslandi áður en farsímarnir komu.
Þetta hús hafði staðið autt í mörg ár
og var í algjörri niðurníðslu. Þetta
var í skelfilegu ástandi en við erum
búin að gera það upp á þessum
tæpum þremur árum og það er svo
til klárt,“ segir Þórarinn, sem er
framkvæmdastjóri Veraldarvina.
Þórarinn segir að í húsinu séu
þeir erlendu sjálfboðaliðar sem
eru að vinna að umhverfismálum.
„Við komum fyrir hátt í 40 manns í
húsinu. Það er allur búnaður til að
framleiða rafmagn til staðar í hús-
inu en lögnin upp að stíflunni er
brostin og er ónýt. Við höfum verið
í samstarfi við Háskólann í Reykja-
vík um að endurbyggja og þá erum
við komin með sjálfbært hús,“ segir
Þórarinn, en að hans sögn voru um
tíu sjálfboðaliðar að jafnaði sem
voru í vinnu við að standsetja húsið
auk iðnaðarmanna sem unnu í
pípulögnum. 25 manns eru þegar í
húsinu og vinna að því að tína rusl í
fjörunum þarna í kring.
Húsið í Krýsuvík er á milli sex til
sjö hundruð fermetrar að stærð og
var notað sem vinnuheimili fyrir
börn á árum áður að sögn Þórarins.
„Ég held að þetta hús hafi staðið
autt í um 20 ár og við erum núna
byrjuð að taka til hendinni þar.
Hafnarfjarðarbær er eigandi húss-
ins en við gerðum samkomulag
við bæinn um að fá húsið og gera
það upp. Það er fullt af alls konar
húsgögnum í því svo væntanlega
þurfum við ekki að kaupa neitt
inn í það. Þegar við verðum búin
að koma húsinu í lag þá lögum við
húsgögnin líka,“ segir Þórarinn.
Ætla að endurvekja gróðurhúsin
Það er fleira en húsið sem Veraldar-
vinir eru að vinna í að koma í stand
í Krýsuvík.
„Það eru átta til níu hundruð
fermetrar af gróðurhúsum þarna á
svæðinu og við ætlum að endur-
vekja þau. Við ætlum að vera með
græðlinga til ræktunar á svæðinu
og svo höfum við tekið að okkur
félag sem heitir Gróður fyrir fólk
í landnámi Ingólfs. Við erum að
rækta vistvang sem er þarna í
kringum húsið. Þetta verður 300
hektara vistvangur. Sjálfboðalið-
arnir okkar koma til með að búa
þarna og sjá um að græða upp þetta
land. Þetta verkefni í Krýsuvík
fer af stað í vor. Við erum að fara
að koma húsinu upp og þegar við
verðum búin að koma einum fjórða
í gang þá getum við farið að vinna
með fólk á staðnum. Þetta verður
farið af stað í byrjun maí og í júní
verður komið fullt af fólki í húsið,“
segir Þórarinn.
Hann segir mikilvægt að láta hús
ekki drabbast niður en nýta þau í
staðinn til góðra verka.
„Þessi hús á Brú og í Krýsuvík
eru frábærlega vel staðsett og við
í Veraldarvinum hjóluðum bara
í þetta verkefni. Það var strembið
en við komumst fyrir vind í þessu
verkefni.“
Þórarinn segir að frá því Ver-
aldarvinir hófu starfsemi hafi sam-
tökin tekið á móti um 20 þúsund
sjálfboðaliðum og hafa þeir skilað
2,3 milljónum klukkustunda til
íslenskrar náttúru. n
Veraldarvinir standa í ströngu
Þessi hús á Brú og í
Krýsuvík eru
frábærlega vel staðsett og
við hjá Veraldarvinum
hjóluðum bara í þetta
verkefni.
Þórarinn Ívarsson
Stefnumótun með sjálfbærni að leiðarljósi
Sjálfbærnistefna sem tekur mið af stefnu fyrirtækja
Mikilvægisgreining til að meta helstu sjálfbærniþætti
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem hluti stefnu
Sjálfbærniskýrslur með GRI, UFS og fleiri viðmiðum
Vinnustofur og innleiðing meðal starfsmanna
Sjálfbærniupplýsingagjöf sem tekur mið af nýjum lögum og
reglugerðum
Ráðgjöf í stefnumótun með sjálfbærni að leiðarljósi og innleiðing
Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna eru sérsvið Podium ehf.
Podium hefur unnið fyrir fyrirtæki stór og smá og mótað stefnur með
sveitarfélögum og stofnunum.
eva@podium.is www.podium.is
ERTU MEÐ'ETTA? EÐA TEKUR STEFNAN
ÞÍN MIÐ AF SJÁLFBÆRRI ÞRÓUN?
18 kynningarblað 29. mars 2023 MIÐVIKUDAGURSjálfbærni í rekStri